Yfir Svarthöfða kemur stundum eftirsjá vegna alls þess tíma sem hann hefur varið í að skoða samfélagsmiðla. Til hvers að reyna að lifa heilsusamlega og lengja þannig jarðlífið þegar lengingunni er varið á samfélagsmiðlum? Oftar en ekki bætir það sem þar ber fyrir augu engu við. Stundum vekur það Svarthöfða jafnvel gremju og óyndi.Svarthöfða finnst eins og hið síðastnefnda hafi orðið meira áberandi í seinni tíð – eða allt frá því að ákveðið var að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald viðræðna um aðild að Evrópusambandinu.
Svarthöfði skrifar: Lítt ritfærir birta gullaldartexta