Hinsegin dagar ná hámarki á morgun, laugardag, með Gleðigöngunni, sem fer af stað kl. 14 frá Hallgrímskirkju, en viðburðurinn hefst kl. 13.Eitt af mörgum verkefnum sem þessum stóra viðburði fylgja er að gæta öryggis í kringum vagnanna sem ekið er eftir götum miðborgarinnar. Jóhannes Þór Skúlason hvatti þá sem hafa áhuga á að sinna þessu hlutverki að hafa samband við sig, í stuttri tilkynningu á Facebook-síðu sinni. DV hafði samband við hann til að forvitnast örlítið um þetta öryggishlutverk, sem og um stemninguna fyrir þessum mikla, árlega viðburði.
„Sumt af þessu verður ekki túlkað öðruvísi en sem hatur, því miður“