Margeir Steinar Ingólfsson, betur þekktur sem DJ Margeir, hefur haldið tónleikana MOMENT á Menningarnótt síðan árið 2013. Gestum býðst þar að stíga inn í undraheim danstónlistar undir handleiðslu plötusnúðsins. Viðburðurinn er ókeypis í boði Icelandair og allir velkomnir.
„MOMENT er í raun einskonar dansmaraþon á Menningarnótt þar sem góð stemmning, ljós og kærleikur eru í fyrirrúmi. Okkur langar að nota þann kraft sem verður til á Klapparstígnum til góðs og hvetjum alla sem hafa notið augnabliksins með okkur í gegnum árin til að styrkja Minningarsjóð Bryndísar Klöru,“ segir Margeir um viðburðinn.
Fólk getur styrkt Minningarsjóðinn með því að kaupa styrktarmiða á moment.is þar sem öll framlög renna óskipt í sjóðinn. Þeir sem kaupa styrktarmiða fara í pott og eiga möguleika á vinningum frá veitingastöðum í nágrenninu. DJ Margeir og MOMENT munu jafna öll framlög, krónu á móti krónu, allt að 500.000 krónum.
„Ég skora jafnframt á aðra öfluga aðila sem hafa sett svip sinn á Menningarnótt í gegnum árin að finna leið til að styðja við þetta góða málefni. Ef við öll leggjumst á eitt getum við látið hátíðina snúast um meira en skemmtunina eina og skapað raunveruleg, jákvæð áhrif,“ segir Margeir.
Borgarstjóri mun setja Menningarnótt á MOMENT sviðinu kl. 12:30 laugardaginn 22. ágúst. Fjölskylda Bryndísar Klöru Birgisdóttur, sem lést voveiflega í stunguárás á Menningarnótt árið 2024, er stuðningnum afar þakklát.
„Menningarnótt mun alltaf hafa djúpa merkingu fyrir okkur, fjölskyldu Bryndísar Klöru. Þess vegna snertir það okkur þegar fólk ákveður að taka gleðina og kraftinn á Menningarnótt til að skapa eitthvað fallegt og kærleiksríkt í nafni Bryndísar,“ segir Birgir Karl Óskarsson, faðir Bryndísar Klöru.
„Við erum DJ Margeiri og öllum þeim sem taka þátt í MOMENT innilega þakklát. Við getum ekki breytt því sem gerðist, en saman getum við haft áhrif á það sem gerist næst,“ segir hann jafnframt.