Maron Birnir var farinn að koma fram víðs vegar um bæinn sem unglingur með félögum sínum í Tónhyl Akademíu og frægðarsól hans fór fljótt að skína skært. Hann hefur unnið hörðum höndum að plötunni undanfarið og lét meira að segja flúra titil plötunnar á magann á sér.
Vinir, fjölskylda og fjöldi þekktra andlita mættu í útgáfuteitið til að samgleðjast honum. Maron tók nokkur lög af plötunni við góðar undirtektir en þetta er fyrsta sóló-platan sem hann gefur út og sveif hann um á bleiku skýi við þessi tímamót. Í salnum mátti sjá tónlistarfólk á borð við Daniil og Alaska og drengirnir úr Tónhyl Akademíu létu sig ekki vanta.
Hér má sjá vel valdar myndir frá teitinu: