Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssu­maðurinn dæmdur - Vísir

Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssu­maðurinn dæmdur - Vísir

Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssu­maðurinn dæmdur - Vísir

Dómur þess efnis var kveðinn upp þann 15. maí í Héraðsdómi Vestfjarða. Dómurinn hefur ekki verið birtur en Vísir hefur fengið hann afhentan.

Maðurinn var ákærður fyrir brot gegn valdstjórninni og brot gegn vopnalögum, með því að hafa haft í vörslum sínum Baikal IJ18 haglabyssu án þess að hafa skotvopnaleyfi og skotið úr henni, þar sem hann hafi verið staddur um borð í fiskiskipinu Agnari BA-125 úti á sjó á Patreksfirði.

Hann hafi skotið í átt að ómönnuðu fjarstýrðu loftfari, eftirlitsdróna, sem starfsmaður Fiskistofu notaði við eftirlit með veiðum skipsins, og þannig ekki gætt fyllstu varúðar og með því leitast við að hindra framkvæmd starfa veiðieftirlitsmannsins.

Leyfið reyndist útrunnið

Í dóminum segir að maðurinn hafi skýrt frá því fyrir dómi að hann hefði gegnt hlutverki skipstjóra um borð í bátnum þennan dag. Með honum um borð hafi verið vitni í málinu sem háseti. Þeir hásetinn hefðu starfað saman í þrjár eða fjórar vertíðir fyrir þetta og þeir þekktust vel. Þeir hefðu verið að veiðum í Patreksfirði en hann mundi ekki nákvæmlega hversu langt þeir voru frá landi. 

„Spurður um veðrið þennan dag kvaðst ákærði ekki muna það nákvæmlega en sennilega hafi það verið fínt. Aðspurður kannaðist ákærði við það að haglabyssa af gerðinni [afmáð] hafi verið um borð og um ástæðu þess sagði ákærði það almennt tíðkast. Faðir ákærða eigi byssuna en hún sé einnig skráð á ákærða. Ákærði hafi talið sig vera með gilt skotvopnaleyfi á þessum tíma en hann hafi kannað það eftir að málið kom upp og hafi leyfið reynst útrunnið.“

Eftir að upptaka úr dróna Fiskistofu var spiluð fyrir dóminum hafi maðurinn verið beðinn um að skýra hvað sæist á henni. Hann hafi sagst hafa verið að skjóta upp í loftið. Hann hefði ekki verið að skjóta á neitt sérstakt heldur verið að fæla fugl. Hætta væri á því að fugl fari í veiðarfærin og taki beitu af línunni. Hann hefði hleypt tvisvar sinnum af byssunni og mundi ekki hvað honum og hásetanum fór á milli af því tilefni. Um púðurskot hefði verið að ræða en ekki venjuleg haglaskot. 

„Ákærði hafi fyrst séð drónann eftir að hann hafi skotið og hafi ákærði verið hissa að sjá dróna á lófti. Bátsvélin hafi verið í gangi og ekkert heyrst í drónanum. Ákærði geti ekki sagt til um það hversu langt dróninn hafi verið frá bátnum en það hafi verið töluvert langt. Ákærði hafi ekki séð merkingar á honum. Um drægni byssunnar sagði ákærði að hún drífi ekki lengra en 35-30 metra og það jafnvel þótt haglaskot séu í henni en dróninn hafi verið mun lengra í burtu en það. Spurður um það hvort um eðlilega notkun á skotvopni hafi verið að ræða sagði ákærði þetta tíðkast á mörgum bátum og hann hefði ávallt byssu um borð.“

Hindraði eftirlitsstörf það sem eftir lifði dags

Haft er eftir eftirlitsmanni Fiskistofu að hann hefði verið við eftirlitsstörf á sunnanverðum Vestfjörðum þennan dag og tekið eftir því að bátur hefði verið við veiðar í Patreksfirði. Hann hefði því ákveðið að fljúga dróna að bátnum til að athuga hvort farið væri eftir lögum og reglum. Þegar dróninn hefði verið kominn að bátnum hefði hann séð að verið væri að draga inn veiðarfæri og taka inn fisk. Allt væri með felldu en hann hefði ákveðið að færa drónann til þess að fá betra sjónarhorn á bátinn. 

„Hafi vitnið þá tekið eftir því að starfsmenn um borð í bátnum hafi bent á drónann, einn þeirra farið inn í stýrishús og komið fljótlega aftur út með skotvopn í hönd. Sá hafi strax farið að skjóta í áttina að drónanum. Fát hafi komið á vitnið en vitnið ákveðið að kveikja á upptöku.“ 

Á upptökunni sjáist eitt skot en hann hefði glögglega heyrt, enda verið um 300 til 500 metra í burtu, og séð með myndavél drónans að í heildina hefðu skotin verið þrjú. Hann hefði stýrt drónanum til baka, haft samband við yfirmenn sína og ekið að lögreglustöðinni á Patreksfirði til þess að tilkynna atvikið. Þegar hann hafi verið spurður um flughæð drónans hann svarað því til að dróninn hafi verið í um 60 til 80 metra hæð og um 50 metra frá bátnum „lárétt“ að hámarki. 

„Vitnið hafi talið sér ógnað með þessu athæfi og hafi þetta hindrað eftirlitsstörf þess þennan dag.“

Ekki árás á starfsmanninn sjálfan

Í niðurstöðukafla dómsins segir að dómurinn gæti ekki lagt til grundvallar að maðurinn hefði með háttsemi sinni ráðist persónulega að stjórnanda drónans og því bæri að sýkna hann af ákæru fyrir brot gegn valdstjórninni með því að fremja árás gegn opinberum starfsmanni. 

Aftur á móti bæri að meta hvort hann hefði brotið gegn valdstjórninni með því að tálma því að opinber starfsmaður gegni skyldustörfum sínum. Við það mat þyrfti að slá því föstu hvort maðurinn hefði verið meðvitaður um að um veiðieftirlitsdróna hefði verið að ræða. Hann hefði neitað því að svo væri.

„Hins vegar verður ekki fram hjá því litið að alkunna er að veiðieftirliti er sinnt með þessum hætti við Íslandsstrendur og þá sérstaklega meðal þeirra sem starfa við sjósókn. Ákærði hefur sömuleiðis viðurkennt að hafa verið meðvitaður um þessa staðreynd og af hans hálfu hafa ekki komið fram trúverðugar skýringar á því hvers vegna hann hafi hleypt af skotum í áttina að dróna sem hann hafi þá talið í einkaeigu eða að lágmarki flogið í öðrum tilgangi en til að sinna veiðieftirliti. Að framangreindu virtu telur dómurinn hafið yfir vafa að ákærði hafi mátt vita að yfirgnæfandi líkur væru á því að um veiðieftirlitsflug væri að ræða. Í þessu ljósi er rökréttast að túlka háttsemi ákærða á þann veg að ef eftirlitinu yrði haldið áfram eða drónanum flogið nær bátnum kynni ákærði að gera tilraun til að skjóta drónann niður.“

Milljón í sakarkostnað

Maðurinn hafi því verið sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni og vopnalagabrot, þar sem skotvopnaleyfi hans hefði sannanlega runnið út árið 2007, og hann dæmdur til greiðslu 150 þúsund króna sektagreiðslu.

Þá bæri manninum að bera tvo þriðju hluta sakarkostnaðar, eða alls eina milljón króna. Hálf milljón króna greiðist úr ríkissjóði.

#drónans #stjórnandi #sér #taldi #ógnað


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262907085d/stjornandi-dronans-taldi-ser-ognad-og-byssumadurinn-daemdur

📰 Aðrar fréttir

Queen reflects on reading 'forbidden' Lady Chatterley's Lover under the pillow
📅 10.10.2026 👁️ 2
Queen reflects on reading 'forbidden' Lady Chatterley's Lover under the pillow
In BBC documentary The Book That Changed My Life, the Queen speaks about memorable moments in her own reading.
Nord Stream trial: How German police followed the evidence - to Ukraine
📅 10.10.2026 👁️ 2
Nord Stream trial: How German police followed the evidence - to Ukraine
After four years, a Ukrainian man is set to stand trial in Hamburg accused of sabotaging the Nord Stream pipelines.
Lýsa yfir neyðarástandi í þremur ríkjum vegna fellibyls
📅 10.10.2026 👁️ 2
Lýsa yfir neyðarástandi í þremur ríkjum vegna fellibyls
Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í Flórída, Alabama og Georgíu í Bandaríkjunum vegna fellibylsins Isaias sem nú gengur yfir. Veðurfræðingar vara vi...
Flydubai attacker began drifting towards extremism in Australia, UAE says
📅 10.10.2026 👁️ 2
Flydubai attacker began drifting towards extremism in Australia, UAE says
The United Arab Emirates' attorney-general also alleges the co-pilot was trying to crash the plane into Tel Aviv's airport.
Friðarsúla Yoko Ono tendruð í tuttugasta sinn
📅 10.10.2026 👁️ 3
Friðarsúla Yoko Ono tendruð í tuttugasta sinn
Friðarsúla Yoko Ono var tendruð í tuttugasta sinn í Viðey í gærkvöld og var friðsæl athöfn haldin í Viðey af því tilefni. Tónlistarkonan Árný Margrét ...
Life-threatening Hurricane Isaias makes landfall in Florida
📅 10.10.2026 👁️ 3
Life-threatening Hurricane Isaias makes landfall in Florida
The storm took direct aim at Florida and is expected to impact Alabama, Georgia, and Louisiana.
Öflugur jarðskjálfti af stærðinni 7,7
📅 10.10.2026 👁️ 3
Öflugur jarðskjálfti af stærðinni 7,7
Jarðskjálfti af stærðinni 7,7 varð í Panama í gær, um klukkan 18:00 að íslenskum tíma. Skjálftinn átti upptök sín um tíu kílómetra frá litlum bæ, Pita...
Trump og Pútín gera samning um dísilolíu
📅 10.10.2026 👁️ 4
Trump og Pútín gera samning um dísilolíu
Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að hann hafi komist að samkomulagi við Vladimír Pútín Rússlandsforseta um afhendingu á 300.000 tonnum af dísilolí...
Vance ætlar ekki að horfa á af­tökuna í beinni - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Vance ætlar ekki að horfa á af­tökuna í beinni - Vísir
Hasan, sem myrti þrettán manns í skotárás á Fort Hood-herstöðinni árið 2009, á að verða tekinn af lífi af aftökusveit í desember. Vance ræddi málið vi...
CJP, Gyanesh Kumar: Tens of thousands of forces deployed as Delhi braces for cockroach protest
📅 09.10.2026 👁️ 4
CJP, Gyanesh Kumar: Tens of thousands of forces deployed as Delhi braces for cockroach protest
Several trains to Delhi have been cancelled and dozens of metro stations are shut to stop protesters from gathering.
UK weather: a weekend of showers and sunshine ahead of warmer temperatures next week
📅 09.10.2026 👁️ 4
UK weather: a weekend of showers and sunshine ahead of warmer temperatures next week
With sunshine and showers forecast for the weekend, next week could see a return to some warmer temperatures but there will be gales for some.
Vance ekki spenntur fyrir aftökunni í beinni - „Þá ætla ég ekki að horfa“
📅 09.10.2026 👁️ 4
Vance ekki spenntur fyrir aftökunni í beinni - „Þá ætla ég ekki að horfa“
J.D. Vance varaforseti Bandaríkjanna er ekki áhugasamur um fyrirhugaða aftöku á Nidal Malik Hasan sem myrti 13 manns í herstöðinni Fort Hood í Texas á...
Þekkir þú RÚV stefin?
📅 09.10.2026 👁️ 4
Þekkir þú RÚV stefin?
Upphafsstef þáttanna sem sendir hafa verið út á rásum RÚV í gegnum tíðina eru sem greypt inn í minni þjóðarinnar.Trompetleikarinn Tumi Torfason hefur ...
Screams, haunting scenes and deadly hide-and-seek, as Celebrity Traitors heats up
📅 09.10.2026 👁️ 4
Screams, haunting scenes and deadly hide-and-seek, as Celebrity Traitors heats up
Episode four saw another contestant killed off, a ghoulish mission near a graveyard and a spooky twist.
Fréttir Vikunnar: Fimleikaæfingar Dorritar og 40 ára afmæli Stöðvar 2
📅 09.10.2026 👁️ 4
Fréttir Vikunnar: Fimleikaæfingar Dorritar og 40 ára afmæli Stöðvar 2
Bergild Festival fór yfir fréttir vikunnar í Vikunni með Gísla Marteini í kvöld. Ýmislegt bar á góma, til að mynda heimsókn Marco Rubio, utanríkisráðh...
Trump's shock Russia deal highlights mounting pressure to curb fuel prices
📅 09.10.2026 👁️ 4
Trump's shock Russia deal highlights mounting pressure to curb fuel prices
The US president hopes to ease his party's pain before next month's midterm elections, writes the BBC's North America correspondent.
Aflífun í beinni útsendingu fordæmd en Trump er sama
📅 09.10.2026 👁️ 1
Aflífun í beinni útsendingu fordæmd en Trump er sama
Aflífun í beinni útsendingu fordæmd en Trump er sama Stríðs­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna er for­dæmd­ur fyr­ir að boða beina út­send­ingu af af­líf­...
Kolbeinn Stefánsson hjólar í fjölmiðla og háskólasamfélagið: „Við erum tilbúin að trúa öllu slæmu um karla“
📅 09.10.2026 👁️ 4
Kolbeinn Stefánsson hjólar í fjölmiðla og háskólasamfélagið: „Við erum tilbúin að trúa öllu slæmu um karla“
Kolbeinn Stefánsson, dósent við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands, gagnrýnir harðlega hvernig íslenskir fjölmiðlar fjölluðu um umdeilda rannsókn á ...
Reynir Valgeirsson skrifar: Skálanesbót – fuglarnir voru þar á undan kvíunum
📅 09.10.2026 👁️ 4
Reynir Valgeirsson skrifar: Skálanesbót – fuglarnir voru þar á undan kvíunum
Forspjall: Skálanes, landið, fólkið og fuglarnir
Trump rýfur einangrun Rússlands
📅 09.10.2026 👁️ 4
Trump rýfur einangrun Rússlands
Trump rýfur einangrun Rússlands Banda­ríkja­for­seti af­nem­ur við­skipta­bann Vest­ur­landa á olíu frá Rússlandi, sem átti að þvinga Vla­dimír Pútín ...
Faðir nauðgaði 14 ára stúlku á meðan móðirin tók það upp á farsímann sinn
📅 09.10.2026 👁️ 4
Faðir nauðgaði 14 ára stúlku á meðan móðirin tók það upp á farsímann sinn
Foreldrar fjórtán ára stúlku í Indlandi hafa verið handteknir eftir hrottalegt kynferðisbrot gagnvart henni. Faðirinn nauðgaði stúlkunni á meðan móðir...
JD Vance ætlar ekki að horfa á aftöku Hasans verði henni streymt
📅 09.10.2026 👁️ 4
JD Vance ætlar ekki að horfa á aftöku Hasans verði henni streymt
JD Vance varaforseti Bandaríkjanna segist ekki ætla að horfa á aftöku Nidals Hasans, fyrrverandi majórs í Bandaríkjaher, verði hún sýnd í beinni útsen...
Skrúð­gangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Skrúð­gangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu - Vísir
Chris Bryant, Norður-Írlandsmálaráðherra í bresku ríkisstjórninni, greindi frá ákvörðuninni í kvöld. Hún kemur í kjölfar nærri tveggja vikna átakastöð...
Gengur ekki að fjöldaframleiða framandi ágenga tegund
📅 09.10.2026 👁️ 4
Gengur ekki að fjöldaframleiða framandi ágenga tegund
Minkar og menn eru til umræðu á ráðstefnu sem er haldin í Norræna húsinu og er á vegum Samtaka um dýravelferð. Samtökin vilja Ísland án loðdýraræktar ...
Three men found guilty of murdering two Australian surfer brothers and US friend
📅 09.10.2026 👁️ 4
Three men found guilty of murdering two Australian surfer brothers and US friend
The bodies of Jake and Callum Robinson and their friend Carter Rhoad were found at the bottom of a well.
Reynir Valgeirsson skrifar: Selstaðavík – landið, hafsbotninn, byggðin og versta hamfarasviðsmyndin
📅 09.10.2026 👁️ 4
Reynir Valgeirsson skrifar: Selstaðavík – landið, hafsbotninn, byggðin og versta hamfarasviðsmyndin
Forspjall: Selstaðavík, landið, hafsbotninn og byggðin:Áður en sjálf hamfarasviðsmyndin er rakin þarf að sjá staðinn fyrir sér sem eina heild. Selstað...
Kvartaði yfir Sjúkratryggingum og heilbrigðisráðuneytinu vegna andláts dóttur sinnar á erlendu sjúkrahúsi - Alma beðin um almennar upplýsingar vegna málsins
📅 09.10.2026 👁️ 4
Kvartaði yfir Sjúkratryggingum og heilbrigðisráðuneytinu vegna andláts dóttur sinnar á erlendu sjúkrahúsi - Alma beðin um almennar upplýsingar vegna málsins
Umboðsmaður alþingis telur ekki tilefni til að halda áfram meðferð kvörtunar sem maður nokkur lagði fram vegna andláts dóttur hans á sjúkrahúsi í ónef...
Trump samdi við Pútín um dísel - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Trump samdi við Pútín um dísel - Vísir
Bandaríkjastjórn hefur samhliða þessu slakað tímabundið á höftum á rússneskum orkufyrirtækjum svo olían komist á markað. Trump greindi frá samkomulagi...
Sóttvarnarráðstöfunum aflétt í Rússlandi
📅 09.10.2026 👁️ 4
Sóttvarnarráðstöfunum aflétt í Rússlandi
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin kallar eftir því að rússnesk stjórnvöld deili gögnum um andlát starfsmanns á rannsóknastofu. Grunur vaknaði um að hún hefð...
Aukin heilsuefling eldra fólks gæti sparað 20 milljarða á ári
📅 09.10.2026 👁️ 4
Aukin heilsuefling eldra fólks gæti sparað 20 milljarða á ári
Hægt væri að spara ríkissjóði 20 milljarða á ári með því að seinka vistun þúsund manns á hjúkrunarheimili um eitt ár.Þetta segir Janus Guðlaugsson íþr...
„Við erum næstum að kæfa fram­halds­skóla­stigið“ - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
„Við erum næstum að kæfa fram­halds­skóla­stigið“ - Vísir
Í framsögu Magnúsar Þórs Jónssonar, formanns Kennarasambands Íslands, á fundinum kom fram að skólakerfið verði ekki byggt með skyndilausnum frá einu k...
Fjölbragðaglímumaður handtekinn eftir ólöglegt tak á 75 ára dómara sem dó í hringnum
📅 09.10.2026 👁️ 4
Fjölbragðaglímumaður handtekinn eftir ólöglegt tak á 75 ára dómara sem dó í hringnum
Fjölbragðaglímukappi í Mexíkó hefur verið handtekinn eftir að hafa tekið 75 ára gamlan dómara ólöglegu glímutaki. Dómarinn lést í kjölfarið.Miðillinn ...
Ölgerðin sögð hafa rutt samkeppni úr vegi með kröfu um einkasölu
📅 09.10.2026 👁️ 4
Ölgerðin sögð hafa rutt samkeppni úr vegi með kröfu um einkasölu
Samkeppniseftirlitið réðst í húsleit hjá Beru, móðurfélagi Ölgerðarinnar, í morgun vegna gruns um að Ölgerðin hefði gerst sek um misnotkun á markaðsrá...
Drumcree: Secretary of state Sir Chris Bryant to ban the Drumcree parade
📅 09.10.2026 👁️ 4
Drumcree: Secretary of state Sir Chris Bryant to ban the Drumcree parade
The parade has led to a stand-off between Orangemen and nationalist residents of the Garvaghy Road in Portadown lasting almost two weeks.
Vance biðlar til ungra reiðra manna - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Vance biðlar til ungra reiðra manna - Vísir
Miklu púðri hefur að undanförnu verið varið í að ná til ungra bandarískra manna og hefur JD Vance varaforseti verið fenginn sérstaklega í það verkefni...
Fordæma það að Pillay hafi fengið friðarverðlaun Nóbels
📅 09.10.2026 👁️ 4
Fordæma það að Pillay hafi fengið friðarverðlaun Nóbels
Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels sakar Navi Pillay, friðarverðlaunahafa Nóbels í ár, um gyðingafordóma. Pillay hefur kallað stríðsrekstur Í...
Trump announces deal for Russian diesel as Zelensky criticises 'gift to Putin'
📅 09.10.2026 👁️ 4
Trump announces deal for Russian diesel as Zelensky criticises 'gift to Putin'
Ukraine's president said allowing Russia to sell petroleum products would prolong a war that must be ended.
Trump announces deal for Russian diesel as Zelensky calls it a 'gift to Putin'
📅 09.10.2026 👁️ 4
Trump announces deal for Russian diesel as Zelensky calls it a 'gift to Putin'
Ukraine's president sharply criticised the move, calling it an "investment in war that must be ended, not prolonged".
Arion banki krefst tuga milljóna frá huldufyrirtæki sem stýrt er af manni sem finnst ekki
📅 09.10.2026 👁️ 4
Arion banki krefst tuga milljóna frá huldufyrirtæki sem stýrt er af manni sem finnst ekki
Arion banki hefur stefnt fyrirtæki, sem lítið fer fyrir og ekki virðast finnast merki um á skráðu heimilisfangi þess, til greiðslu um 83 milljóna krón...
Commentator Katie Zacharia picked as new White House press secretary
📅 09.10.2026 👁️ 4
Commentator Katie Zacharia picked as new White House press secretary
The conservative commentator currently works as a communications adviser at Trump Media & Technology Group.
Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir - Vísir
Greint er frá því í dagbók lögreglunnar að þetta hafi gerst í umdæmi lögreglustöðvar tvö sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði, Garðabæ og á Álftanesi.  ...
Man arrested for allegedly setting fire to a dog in south Tenerife
📅 09.10.2026 👁️ 4
Man arrested for allegedly setting fire to a dog in south Tenerife
A man has been arrested in Adeje, south Tenerife, on suspicion of burning a dog alive, in a disturbing case that has also exposed wider concerns about...
JD Vance casts doubt on firing squad execution and says he won't watch it
📅 09.10.2026 👁️ 4
JD Vance casts doubt on firing squad execution and says he won't watch it
The planned execution of Nidal Hasan by firing squad would be the first military execution in more than 60 years.
Sigurveig I. Jónsdóttir er látin
📅 09.10.2026 👁️ 4
Sigurveig I. Jónsdóttir er látin
Sigurveig I. Jónsdóttir, fyrrverandi fréttastjóri Fréttastofu Stöðvar 2 og upplýsingafulltrúi Íslandsbanka, er látin 83 ára að aldri.Þetta kemur fram ...
Seldu ó­vart hjól við­skipta­vinar - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Seldu ó­vart hjól við­skipta­vinar - Vísir
Nytjamarkaðurinn lýsti eftir kaupandanum á samfélagsmiðlum í dag. Um rautt reiðhjól hafi verið að ræða sem selt hafi verið fyrir slysni enda nóg af öð...
Sigur­veig I. Jóns­dóttir er látin - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Sigur­veig I. Jóns­dóttir er látin - Vísir
Sigurveig I. Jónsdóttir, fyrrum fréttastjóri Fréttastofu Stöðvar 2 og upplýsingafulltrúi Íslandsbanka lést í dag, 9. október. Sigurveig fæddist í Reyk...
Þing­menn laumuðust í laugina eftir lokun - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Þing­menn laumuðust í laugina eftir lokun - Vísir
Þingmenn Norðausturkjördæmis fóru í sund í Selárlaug í Vopnafirði eftir lokun í kjördæmaviku. Sveitarstjórnarfulltrúi er sagður hafa gefið leyfi fyrir...
„Skemmtilegt hvernig okkar bókmenntaflóra hefur orðið ríkari með fólki sem hefur hingað flutt“
📅 09.10.2026 👁️ 4
„Skemmtilegt hvernig okkar bókmenntaflóra hefur orðið ríkari með fólki sem hefur hingað flutt“
„Þau eru auðvitað stórkostleg og ég byrja á því að óska henni til hamingju,“ segir Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, inntur ...
Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing - Vísir
„Ég get staðfest að ég heyrði í nokkrum félögum úr verkalýðshreyfingunni um þetta og sömuleiðis að ég er ekki að fara fram,“ segir Katrín í skriflegu ...
Fimm ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps í bílakjallaranum við Höfðatorg
📅 09.10.2026 👁️ 4
Fimm ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps í bílakjallaranum við Höfðatorg
Kareem M. M. Abufarah hefur hlotið fimm ára fangelsisdóm fyrir tilraun til manndráps með því að hafa ekið á mann á miklum hraða í bílakjallaranum við ...