Steypubíll sem lenti í Þjórsá í gærkvöldi hefur verið fjarlægður úr ánni.
Ökumaðurinn var einsamall í bílnum er bíllinn fór út af brú yfir Þjórsá nálægt Sultartangavirkjun og endaði í ánni. Maðurinn komst af sjálfsdáðum út úr bílnum og beið bjargar á þeirri hlið bílsins sem stóð upp úr ánni.
Fjölmennt viðbragðslið var kallað á vettvang en þyrla Landhelgisgæslunnar sótti manninn og flutti á slysadeild.
Ekki á vegum Landsvirkjunar
Að sögn Ragnhildar Sverrisdóttur, upplýsingafulltrúa Landsvirkjunar, er steypubíllinn í eigu Steypustöðvarinnar og var ekki á vegum Landsvirkjunar er slysið varð.
Ragnhildur segir að Landsvirkjun hafi dregið úr rennsli úr Sultartangalóni og þar með minnkað vatnsmagnið í ánni svo að hægt væri að koma að gröfu og kranabíl.
Bíllinn hafi svo verið dreginn upp úr við fjærbakkann þar sem halli hans var minni.
Að sögn Ragnhildar er brúin yfir Þjórsá enn lokuð þar sem unnið er að framkvæmdum.