„Þarf Icelandair að skipta um nafn?“ spyr Jón Þór Þorvaldsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, í fyrirsögn aðsendrar greinar á Vísi í dag. Þar fjallar hann um áform flugfélagsins um að komast yfir flugrekstrarleyfi Fly Play Europe sem stofnað var rétt áður en flugfélagið Play varð gjaldþrota.
Jón Þór segir að sterkar vísbendingar séu „um að meginástæða verkefnisins sé að færa hluta starfsemi Icelandair út fyrir íslenskt vinnumarkaðsumhverfi og íslenska kjarasamninga“. Hann segir að Malta hafi árum saman verið vinsæll áfangastaður evrópskra flugfélaga sem hafi viljað nýta sér lægri launakostnað, veikara samningsumhverfi stéttarfélaga á Möltu og slæm kjör launafólks.
„Sveigjanleikinn sem talað er um snýst því um þá hagræðingu sem felst í því komast undan íslenskum kjarasamningum og geta ráðið starfsfólk á Möltu á allt öðrum og lægri kjörum en tíðkast á Íslandi.“
Jón Þór segir að starfsemi Icelandair á Íslandi skipti þúsundir Íslendinga máli sem eigi afkomu sína beint og óbeint undir starfsemi þess auk þess sem það skili ríkissjóði miklum tekjum. Hann spyr hvort lífeyrissjóðirnir, sem eru stórir hluthafar, geti sætt sig við að félag í þeirra eigu færi hluta starfsemi sinnar úr landi og þar með tekjur starfsfólks, útsvar og aðrar greiðslur.
„Icelandair naut gríðarlegs stuðnings frá íslensku samfélagi í gegnum heimsfaraldurinn. Ríkið veitti félaginu ríkisábyrgðir og almenningur studdi við bakið á því á erfiðum tíma, það gerðu flugmenn ásamt öðru starfsfólki líka. Það er því eðlilegt að spurt sé hvort stærsta flugfélag þjóðarinnar telji sig ekki bera einhverja ábyrgð gagnvart því samfélagi sem stóð með því.“