Spjallið með Frosta Logasyni
Páll Steingrímsson, fyrrverandi skipstjóri hjá Samherja, er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Héraðsdómur sýknaði nýverið ríkisútvarpið og Þóru Arnórsdóttur, fyrrverandi ritstjóra Kveiks, af kröfum Páls en hann fór fram á miskabætur vegna ætlaðra brota starfsmanna Rúv gegn friðhelgi einkalífs hans. Páll hefur ákveðið að áfrýja málinu til Landsréttar auk þess sem hann hefur tilkynnt RÚV til fjölmiðlanenfndar vegna umfjöllunar miðilsins um meintar hótanir hans gegn Helga Seljan og öðrum blaðamönnum. Páll fer í þessu viðtali ítarlega yfir allt hið svokallaða byrlunar- og símastuldsmál og segir því máli aldrei verða lokið fyrr enn sannleikurinn hafi að fullu verið leiddur í ljós.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á brotkast.is/askrift
