Erling Edwald, sonur Ara Edwalds oddvita Miðflokksins í Reykjavík, kveðst afar ánægður með gott fylgi flokksins samkvæmt nýjustu tölum. Faðir hans sé rétti maðurinn í borgarstjórn.
„Hann á þetta skilið eftir þessa löngu og erfiðu kosningabaráttu,“ segir Erling. Hann trúir ekki öðru en að Ari eigi eftir að standa sig vel.
Hvernig hefur verið að vera aðstandandi í kosningabaráttu?
„Það hefur verið mjög skemmtilegt. Þetta er alltaf bara frá morgni til kvölds alla daga síðastliðna tvo mánuði.“
Lestu kommentakerfin?
„Nei, aldrei,“ svarar hinn yngri Edwald.