Íslenska þungarokksveitin Sólstafir lauk nýverið við stífa törn í kringum eina stærstu þungarokkshátíð Evrópu, Graspop Metal Meeting í Belgíu, þar sem sveitin spilaði fjóra tónleika á aðeins fjórum dögum, í allt að 34 stiga hita. Hljómsveitin hefur verið starfandi frá árinu 1995 og er fyrir löngu orðin að risa nafni í alþjóðlegu þungarokks-senunni.
Söngvari sveitarinnar, Aðalbjörn Tryggvason, segir í stuttu spjalli við Nútímann að hitinn í Belgíu hafi verið stærsta áskorunin.
„Heilsan er fín. Eina kvartið var bara hitinn, maður var að svitna á milli puttana og á ólíklegustu stöðum. Þessir minni tónleikastaðir eru ekki alveg með top of the line loftkælingu, og sviðshandklæðið var gegnumblautt eftir lag númer tvö á 90 mínútna giggi.“
Þrátt fyrir að aðstæður hafi verið krefjandi segir hann upplifunina hafa verið einstaka.
„Það er samt mjög gaman að spila í svona hita, öðruvísi stemmning. Eins og samvera í svett tjaldi nánast.“

„Maður er kominn heim eftir fyrsta lag“
Sólstafir eiga sér dyggan hóp aðdáenda um heim allan og spila þeir að jafnaði mun meira á erlendri grundu heldur en hér heima á Íslandi. Hljómsveitin spilar mikið á stórum tónlistarhátíðum og eru þeir að yfirleitt upp bókaðir á sumrin. Graspop Metal Meeting er ein stærsta metal-hátíð Evrópu og Aðalbjörn segir stemninguna þar hafa verið sérstaka.
„Þetta er risa hátíð. Maður heyrði Europe taka The Final Countdown og Alice Cooper taka School’s Out í bakgrunni. Risa svæði og nóg af risaeðlum í bland við ný bönd.“
Þrátt fyrir áratugalangan feril segir hann spennuna þegar hann stígur á svið enn vera til staðar – jafnvel meiri en áður.
„Eiginlega meira. Meiri metnaður í dag, stærri svið, stærri crowd, lengri gigg. En um leið og fyrsta lagið er hálfnað er maður kominn heim.“

Mánaðarfrí fram undan áður en haustið tekur við
Eftir þessa törn tekur við mánaðarhlé hjá sveitinni, en það verður þó ekki mikil kyrrseta.
„Það er bara útilegur og fjölskyldustúss, svo hefst þetta um verslunarmannahelgi. Við erum á festivölum nánast allan ágúst og fram í september.“
Þegar Aðalbjörn er beðinn um að lýsa þessum fjórum dögum í Belgíu með einni setningu kemur svarið hratt:
„Skuggar í skjóli nætur. Þegar hitinn nær 20 gráðum á miðnætti er kvöldið rétt orðið bærilegt, og þá þarf að sofna. Buscall í hótel-lobbý klukkan 08:00 alla daga.“
Fyrir Sólstafi virðist því sumarið vera langt frá því að vera búið – þó það verði smá andrými áður en næsti kafli hefst.
Hér fyrir neðan má sjá tónleika Sólstafa frá Wacken 2023 sem er ein stærsta þungarokkshátíð veraldar.