Það var Haukur Skúli Óttarsson úr Eyjafjarðarsveit sem sigraði tröppuhlaupið. Honum var svo mikið í mun að bæta tíma föður síns upp á 26 sekúndur að hann kastaði sér yfir síðustu tröppurnar. Það nægði til en Haukur kláraði sprettinn á 21,73 sekúndum.
Tröppurnar sem um ræðir eru upp á Nafirnar á Sauðárkróki. Þær eru 163 talsins.
Lagt hefur verið til að tröppuhlaupið verði árlegur viðburður og verði kallað heimsmeistarakeppni í greininni. Ef af verður hlýtur Haukur að vera fyrsti heimsmeistarinn í tröppuhlaupi, segir Jón Aðalsteinn Bergsveinsson kynningarfulltrúi UMFÍ.
Haukur Skúli tók virkan þátt í mótinu og var skráður í margar greinar. Hann hafði til að mynda nýlokið keppni í 800 metra hlaupi þegar hann tók tröppuhlaupið. Dæmi er um að einn þátttakandi hafi skráð sig í 18 greinar. Meðal keppnisgreina eru kökuskreytingar, badminton, utanvegahjólreiðar og frjálsar grashandbolti.
Mikil ánægja meðal skipuleggjenda
„Þetta gekk afburðavel, það eru allir mjög glaðir og sáttir,“ segir Ómar Bragi Stefánsson, framkvæmdastjóri mótsins, sem hefur nú skipulagt sitt síðasta mót.
„Það er gott fólk og gleði í andliti barna og ungmenna stendur upp úr,“ segir Ómar sáttur, eftir tuttugu ár á vaktinni. Annar hápunktur sé fólkið sem hann hafi fengið að vinna með um land allt.
„Maður er búinn að kynnast þúsundum,“ segir Ómar. „Það er markmiðið hjá okkur, að gleðja alla og að allir fari sáttir.“
Mótið flakkar milli landshluta og meðal mótsstaða síðustu ára eru Höfn, Egilsstaðir, Selfoss og Borgarnes. Eins og gefur að skilja er nokkur samkeppni um pláss yfir verslunarmannahelgina og því ýmsir staðir sem ekki koma til greina. Þá bendir Ómar á að mótið sé vímuefnalaus fjölskylduhátíð og blandist því illa við marga aðra viðburði verslunarmannahelgarinnar.
„Veðurspáin var ekki góð fyrir viku síðan en það rættist úr öllu,“ segir Ómar, sem var að störfum við frágang þegar blaðamaður heyrði í honum.
„Hér er sól í heiði og héðan fara allir með sól í hjarta,“ segir Ómar að lokum en mótinu lauk í gærkvöldi með tónleikum, brekkusöng og flugeldasýningu.