Nýbökuðu hjónin tilkynntu um málavexti á samfélagsmiðlinum Instagram. Þar kemur fram að brúðkaupið hafi farið fram í gær en hjónin eiga tvo stráka saman.
Skúli lagði knattspyrnuskóna á hilluna árið 2019 og varð Íslandsmeistari með KR sama ár og fór eftir það utan til Stokkhólms í mastersnám í markaðsfræði. Hann sagði í viðtali við Fréttablaðið það árið að hann og Jennifer hefðu viljað breyta til, hann hafi langað í nám og það hentað henni betur að vera í Svíþjóð en á Íslandi starfa hennar sem fyrirsæta vegna.