Matvælastofnun varar neytendur við einni lotu af frosnum hindberjum frá Grön Balance vegna skordýra sem mögulega geta leynst í pakkningunum. Krónan, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs og Mosfellsbæjar, hefur innkallað vöruna af markaði.
Matvælastofnun vekur athygli á þessu á heimasíðu sinni.
Best fyrir dagsetning á pakkningum hindberjanna er 19.03.2028.
Fólk sem hefur keypt þessa framleiðslulotu getur skilað hindberjunum og fengið endurgreitt.