Skjálftinn sem reið yfir suðvesturhorn landsins klukkan 13.45 í dag virðist hafa fundist víða.
Af svörum lesenda mbl.is að dæma fannst hann hvað mest á höfuðborgarsvæðinu, í Hveragerði og á Selfossi.
„Jæja, ég hef tekið þetta með mér“
Sömuleiðis virðist hans hafa orðið vart í Grímsnesi, í Hvalfjarðarsveit, á Stokkseyri, Akranesi, í Búðardal, á Stokkseyri og rétt utan Hellu.
Í samtali við mbl.is segist íbúi sem stendur í flutningum vestan við Hellu hafa fundið vel fyrir skjálftanum í timburhúsinu sínu:
„Ég hugsa að ef ég hefði verið úti hefði ég ekkert endilega fundið fyrir honum en hér er ég í timburhúsi, eða bústað, þar sem hristist allt og skalf. Það fyndna er að ég er að flytja úr Hveragerði þar sem þetta er daglegt brauð og ég hugsaði: Jæja, ég hef tekið þetta með mér.“
Skjálftinn var um 4,5 að stærð samkvæmt fyrstu mælingum Veðurstofu. Hann er jafnframt talinn hafa orðið á um 4,5 kílómetra dýpi og átti upptök sín á Mosfellsheiði, skammt norður af afleggjaranum frá Suðurlandsvegi að Þrengslum.
Fjöldi eftirskjálfta hefur mælst.