Til skoðunar er að loka dagdvöl fyrir aldraða í Skagafirði í sumar, ásamt frekari þjónustu, þar sem ekki gengur að fá fólk í sumarafleysingar. Íbúar, sérstaklega eldra fólk, er ósátt við stöðuna.
„Íbúar hafa auðvitað miklar áhyggjur. Þessi þjónusta er mjög mikilvæg í samfélaginu og skiptir mjög miklu máli í lífi fjölskyldna og kannski ekki síst í lífi þeirra sem að fá þjónustuna. Það eru þeir sem að verða fyrir skerðingu á lífsgæðum þegar þarf að skerða þjónustu,“ segir Bryndís Lilja Hallsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs í Skagafirði.
Skerða ekki lögbundna þjónustu
Þjónustan sem stendur til að skerða er meðal annars heimaþrif, dagdvöl fyrir aldraða og stuðningsþjónusta. Þetta er ekki lögbundin þjónusta en það er í algjörum forgangi hjá sveitarfélaginu að komast hjá því að skerða hana.
Við erum að horfa til þess að skerðingin hafi ekki áhrif á lögbundna þjónustu.
Ýmislegt hefur verið reynt til þess að bregðast við vandanum, sem er ekki nýr af nálinni en undanfarin sjö ár hefur verið erfitt að manna sumarafleysingar í firðinum.
„Jú við erum búin að reyna ýmislegt og þetta er ekki óskastaða að þurfa að horfa til þess að skerða þjónustu við íbúa. Síðan hefur stytting vinnuvikunnar kallað á fleiri stöðugildi í þjónustu og það hefur skapað ákveðin vandamál hjá okkur,“ segir Bryndís.