Sjúkraþjálfari á höfuðborgarsvæðinu hefur verið ákærður fyrir að svíkja samtals 3,8 milljónir króna út úr Sjúkratryggingum Íslands. Þetta gerði hann, samkvæmt ákæru, með því að skila inn 577 reikningum vegna sjúkraþjálfunar; reikningum sem áttu sér ekki stoð í raunveruleikanum.
Í ákærunni segir að sjúkraþjálfarinn hafi gefið upp rangar upplýsingar um gjaldaliði og dagsetningar vegna meðferða en líka krafist þess að Sjúkratryggingar greiddu fyrir meðferð sem fór ekki fram. Þetta varð til þess að hann fékk greiddar tæpar fjórar milljónir króna á hálfs árs tímabili 2023.
Reikninga sendi sjúkraþjálfarinn inn á grundvelli rammasamnings sem Sjúkratryggingar gerðu við sjúkraþjálfara um greiðsluþátttöku vegna meðferðar skjólstæðinga þeirra.