Sjósundskappinn Sigurgeir Svanbergsson stefnir á aðra tilraun til að synda niður allt Lagarfljótið síðla í ágúst, eftir að hafa þurft að hætta fyrstu tilraun sinni í júní vegna ofkælingar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá teymi Sigurgeirs.
Sigurgeir lagði upp í sundið 15. júní með það að markmiði að verða fyrstur manna til að synda alla leið niður Lagarfljótið, um 50 kílómetra. Hann varð hins vegar að hætta eftir um 15 kílómetra þegar einkenni ofkælingar komu fram.
Líkamshiti hans mældist þá 34 gráður og var hann fluttur til aðhlynningar á Heilbrigðisstofnun Austurlands og síðar á sjúkrahúsið í Neskaupstað. Hann jafnaði sig fljótt og var útskrifaður síðar sama dag.
Samkvæmt Sigurgeiri reyndust aðstæður í fljótinu mun erfiðari en undirbúningur gaf tilefni til að ætla. Vatnsmagn hafði aukist mikið vegna leysinga og hitastig vatnsins lækkað verulega frá því sem mælingar nokkrum dögum áður höfðu sýnt.
„Við vorum búnir að mæla aðstæður um tíu dögum fyrir sundið og þá var bæði minna vatn í fljótinu og hitastigið mun hærra. Þegar við komum á staðinn hafði staðan breyst mikið. Fljótið var ískalt og það kom meira að segja hrím á bátana sem fylgdu mér,“ er haft eftir Sigurgeiri í tilkynningunni.
Fer inn í næstu tilraun reynslunni ríkari
Þrátt fyrir áfallið segist Sigurgeir staðráðinn í að gera aðra tilraun. „Ég ætla mér að klára þetta sund. Fyrsta tilraunin kenndi mér mikið og nú fer ég inn í næstu tilraun reynslunni ríkari. Ég var búinn að æfa mikið fyrir langt sund og líkaminn jafnaði sig fljótt. Nú snýst þetta um að hitta á réttar aðstæður,“ segir hann.
Næsta tilraun verði skipulögð með öryggi í fyrirrúmi. Horft verði sérstaklega til veðurspár, vatnshita, vatnsmagns og annarra aðstæðna í fljótinu áður en lagt verður af stað.