Sigríður Dögg falsar úttekt um blaðamenn

Páll Vilhjálmsson skrifar:
Formaður Blaðamannafélags Íslands, Sigríður Dögg Auðunsdóttir, falsar nýja erlenda úttekt um stöðu blaðamanna og fjölmiðla hér á landi. Sigríður Dögg segir ,,fulltrúa" útgerða hér á landi ógna sjálfstæði blaðamanna. Formaður BÍ klappar sama steininn og RÚV. Tveir Pálar, skipstjóri og bloggari, sitja yfir hlut blaðamanna samkvæmt RÚV í samvinnu við Emil danska.
Blaðamenn án landamæra hækka Ísland um fimm sæti á nýjum lista um fjölmiðlafrelsi. Um áhrif útgerðar á fjölmiðla og blaðamenn segir í úttektinni:
Big fishing companies own media outlets, which raises questions of conflict of interest. Furthermore, since 2019, journalists who covered the Fishrot Files – suspected corruption in Namibia by a major fishing company were subjected to a prolonged smear campaign and a police investigation
Vakin er athygli á mögulegum hagsmunaárekstrum fjölmiðla í eigu útgerða í fyrri setningunni. Í þeirri seinni er talað um óhróðursherferð og lögreglurannsókn á blaðamönnum vegna Namibíumálsins. Lögreglurannsóknin snerist ekki um Namibíumálið heldur aðkomu blaðamanna og RÚV að byrlunar- og símamálinu.
Í endursögn Sigríðar Daggar á efnisgreininni kveður við annan tón og falskari. Þar segir að
sjálfstæði blaðamanna [sé] ógnað af fulltrúum stórfyrirtækja, sérstaklega útgerðarfyrirtækjum. Blaðamenn hafi frá árinu 2019 verið þolendur ófrægingarferferðar Samherja vegna umfjöllunar um mútugreiðslur fyrirtækisins í Namibíu. (feitletr. pv)
Sigríður Dögg býr til ,,fulltrúa" útgerða þar sem enski textinn talar um eignarhald útgerða á fjölmiðlum. Formaður BÍ endurtekur ósannindin um að Namibíumálið sé ástæða lögreglurannsóknar. Sigríður Dögg veit ósköp vel að byrlunar- og símamálið er tilefni sakamálarannsóknar. Þá talar formaðurinn eins og staðfest sé að Samherji hafi mútað í Afríku. Engin slík staðfesting liggur fyrir. Enski textinn segir grun um spillingu (suspected corruption) sem er allt annað en mútugreiðslur.
Fölsun formanns BÍ þjónar tilgangi. Reynt er að telja fólki trú um að RÚV og fylgihnettir, Stundin og Kjarninn (nú Heimildin) hafi afhjúpað mútugjafir í Namibíu. Það er rangt. Ógæfumaður, fíkill og fyllibytta, var dubbaður upp í uppljóstrara sem skáldaði sögur um mútur. Engin gögn sýna fram á mútugjafir.
Namibíumálið hófst í nóvember 2019 með Kveiksþætti á RÚV. Í mars 2021 var Helgi Seljan, ein aðalsprautan í Namibíumálinu, dæmdur fyrir alvarlegt brot á siðareglum RÚV. Tveim mánuðum síðar var Páli skipstjóra Steingrímssyni byrlað. Á meðan skipstjórinn var í öngviti, haldið á lífi í öndunarvél, var síma hans stolið og hann afritaður á RÚV. Upp úr símagögnum skipstjórans var smíðað slúður um skæruliðadeild Samherja. RÚV birti ekkert, var aðgerðamiðstöðin. Stundin og Kjarninn birtu sömu fréttina í tveim útgáfum morguninn 21. maí 2021. Tveir fjölmiðlar segja ekki samtímis sömu fréttina nema þriðji aðili stýri báðum.
Samhengið í Namibíumálinu og byrlun skipstjórans er kýrskýrt. Blaðamenn stóðu höllum fæti í Namibíumálinu og hugðust rétta sinn hlut með þjófnaði á einkagögnum skipstjórans, sem hafði borið blak af þáverandi vinnuveitanda sínum, Samherja. Í frétt RÚV kemur fram að ekkert réttlætti ólöglega afritun síma skipstjórans. Áður en kom að afritun þurfti að byrla og stela.
Sakamenn í röðum blaðamanna þegja enn um aðkomu sína að byrlunar- og símamálinu. Formaður fagfélags blaðamanna leggur sig fram um að gera byrlun, stuld og ólöglega afritun einkasíma á Íslandi að mútumáli í Afríku. Dálítið langsótt.