Sextán ára drengur sem myrti fjóra í skotárás í framhaldsskóla í Georgíu í Bandaríkjunum árið 2024 var í gær dæmdur í lífstíðarfangelsi án möguleika á reynslulausn.
Colt Gray var 14 ára þegar hann gerði skotárás í Apalachee-framhaldsskólanum í bænum Winder og myrti tvo 14 ára nemendur og tvo kennara auk þess sem hann særði níu aðra.
Gray fékk riffil í jólagjöf frá föður sínum árið áður. Faðirinn, Colin Gray, var í mars sakfelldur fyrir manndráp og manndráp af gáleysi fyrir þátt sinn í árásinni með því að hafa vísvitandi gefið syni sínum riffil og virt að vettugi hótanir hans um að gera árás í skólanum. Fangelsisdómur verður kveðinn upp yfir honum síðar í vikunni.
Skotárásir í skólum eru ekki sjaldgæfar í Bandaríkjunum og ábyrgð foreldra hefur í auknum mæli verið til skoðunar í slíkum málum. Foreldrar unglings sem skaut fjóra til bana í menntaskóla í Michigan 2021 voru dæmdir í 10-15 ára fangelsi fyrir manndráp af gáleysi árið 2024.