Lögreglan á Suðurlandi handtók í gær sex erlenda ríkisborgara í tengslum við rannsókn á vasaþjófnaði sem stundaður hafa verið á ferðamannastöðum undanfarnar vikur. Þrír þeirra voru handteknir við Seljalandsfoss þegar þeir voru staðnir að verki við eftirlit óeinkennisklæddra lögreglumanna. Þrír voru handteknir á Selfossi sem eftirlýstir voru vegna gruns um að vera viðriðnir þessa sömu brotastarfsemi.
Sex vasaþjófar handteknir við Seljalandsfoss og á Selfossi