Ísraelar og Bandaríkjamenn hafa samið um að bandarískur herforingi sjái um afvopnun Hamas-samtakanna. Jared Kushner, fulltrúi Bandaríkjastjórnar í málefnum Mið-Austurlanda, var í Ísrael í dag og hitti Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels. Embættismaður ísraelsku stjórnarinnar sagði við AFP-fréttastofuna að þeir hefðu samþykkt þetta fyrsta skref í afvopnun Hamas. Ísraelar hafa hingað til ekki viljað draga herlið frá Gaza, ekki fyrr en Hamas hafi skilað inn vopnum sínum.
Almenningur í Ísrael og á GAza er tortrygginn á viðræðurnar á sama tíma og Ben Gvir þjóðaröryggisráðherra vill gera kerfisbundnar árásir á Gaza þar sem 30–40 yrðu drepnir á dag.