Herinn segist hafa skotið á hernaðarleg mannvirki íranska byltingarvarðarins víðsvegar um landið. Íranskir miðlar segja að þrír hafi látið lífið í nýjustu árásarhrinunni, þar á meðal tveggja ára gamalt barn á Queshm-eyju.
Það virðist því ljóst að hlé sem varð á átökunum um liðna helgi er fyrir bí auk þess sem stríðið hefur breiðst út í þessari viku eftir að Bandaríkjamenn gerðu í samstarfi við Sádí Arabíu árásis á vígamenn í nágrannaríkinu Írak, sem sagðir eru hliðhollir Írönum.