Til stendur að byggja allt að 1.400 íbúðir á næstu árum samkvæmt húsnæðispakka sem ríkisstjórnin kynnti í gær. Húsin verða byggð á ríkislóðum í Reykjavík og aðgerðirnar eru liður í áformum stjórnvalda um að skapa jafnvægi á fasteignamarkaði.
Formenn stjórnarandstöðuflokkanna á Alþingi segja þessar aðgerðir bera keim af komandi kosningum.
„Þetta er meira af því sama. Þetta gerist alltaf fyrir kosningar. Þá er nýtt húsnæði kynnt á glærum. Oft eitthvað sem var búið að kynna áður og væntingar um eitthvað sem gerist í framtíðinni,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins.
Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins tekur í sama streng.
„Enn einu sinni kemur Samfylkingin fram í borginni svona kortér fyrir kosningar. Með sína umbúðapólitík og kynnir hér lausnir til að leysa húsnæðisvanda borgarinnar. Ég ætla að minna á að Samfylkingin er búin að stýra borginni í áratugi,“ segir Guðrún sem gagnrýnir einnig að ekki sé verið að taka á þeim vanda sem nú ríkir á húsnæðismarkaði.
„Þetta gengur ekki upp að segja A og gera síðan B. Að á sama tíma og þau ætla að leysa húsnæðisvanda landsmanna að vera þá að stórhækka álögur og gjöld á uppbyggingu,“ segir Guðrún.
Lilja Alfreðsdóttir formaður Framsóknarflokks segir mikilvægt að falla frá skattahækkunum.
„Það er jákvætt að það sé verið að auka framboð til lengri tíma litið. En það sem er ekki nægilega gott er að þetta nær ekki utan um þann bráðavanda sem er á markaðinum í dag. Til þess að senda réttu skilaboðin þá hefði ríkisstjórnin þurft að tilkynna að það væri verið að lækka kostnað við það að reisa húsnæði. Draga til baka þær skattahækkanir sem ríkisstjórnin hefur boðað. Og það þarf að lækka líka gjöld sveitarfélaganna til að koma hreyfingu á markaðinn,“ segir Lilja.