Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík segir það dylgjur hjá Kristúnu Frostadóttur forsætisráðherra og formanni Samfylkingarinnar að nái Sjálfstæðiflokkurinn völdum í borgarstjórn í kosningunum á laugardaginn sé mikil hætta á að flokkurinn muni selja Orkuveitu Reykjavíkur. Segir Hildur greinilegt að Kristrún hafi, með því að halda þessu fram, loksins náð samstöðu með Degi B. Eggertssyni þingmanni Samfylkingarinnar og fyrrum borgarstjóra.
Kristrún sagði í viðtali við Ólaf Arnarson í hlaðvarpi Eyjunnar meðal annars:
„Þetta er stór hætta núna sem við óttumst í Samfylkingunni að ef Sjálfstæðisflokkurinn kemst til valda í Reykjavík þá muni þeir aftur reyna að selja Orkuveituna . Og það yrði algjörlega í takt við það sem að er verið að fara yfir í landsmálunum.“
Vísaði Kristrún einnig í fordæmi, frá bæði Reykjavík, Reykjanesbæ og úr landstjórninni, fyrir því að Sjálfstæðisflokkurinn hefði verið gjarn á að selja opinberar eignir þar á meðal í orkufyrirtækjum.
Hildur segir það hins vegar af og frá að flokkurinn ætli að beita sér fyrir sölu á Orkuveitu Reykjavíkur nái hann völdum í borgarstjórn á laugardaginn. Hún skrifar á Facebook:
„Það hafa greinilega orðið sögulegar sættir í Samfylkingunni en Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra hefur nú lagst á sveif með aukaleikaranum, Degi B. Eggertssyni, við að dreifa ósannindum um stefnu Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Örvæntingin er ótrúlegur mannasættir. Mér er það bæði ljúft og skylt að svara dylgjum forsætisráðherra: Það er hvorki stefna Sjálfstæðisflokksins, né mín, að selja Orkuveituna. Það hefur legið skýrt fyrir í okkar málefnaskrá frá upphafi. Næsta mál.“