Jaya Sood, breskur hagfræðingur, segir stýrivexti góða til að ná niður verðbólgu ef hún er vegna mikils launakostnaðar og neyslu almennings. Hún telur verðbólgu á Íslandi megi ekki rekja til launa, stéttarfélögin hafi gert hóflega samninga 2024.
Sood hélt erindi á opnum fundi um samspil stýrivaxta og verðbólgu hjá VR í dag.
„Ég held að ástæðan sé aðallega landfræðipólitísk högg og að verðbólgan sé innflutt. Í þeirri sviðsmynd eru stýrivextir ekki besta úrræðið gegn verðbólgu. Hnitmiðað inngrip væri mun vænlegra til árangurs í þeim aðstæðum,“ sagði Sood í kvöldfréttum Sjónvarps.
Ríkisstjórnin sé betur til þess fallin að lækka verðbólgu með hnitmiðuðum aðgerðum frekar en að láta Seðlabankann stýra för með vaxtahækkunum.
Gæti ríkið tekið gjald af þeim sem fljúga reglulega?
Sood tekur aðgerðir til að koma í veg fyrir að verð hækki umfram þörf sem dæmi. Þá veltir hún upp hvort það geti borgað sig að stjórnvöld taki á sig hluta kostnaðar í málum þar sem þau ráði þegar gjaldtöku, til dæmis barnagæslu.
„Þegar verðhækkanir eru svo af völdum ytri þátta sem stjórnvöld ráða engu um, til dæmis eldsneytisverðhækkana, gætu stjórnvöld fundið framsæknar leiðir til að verja neytendur fyrir þessum verðhækkunum. Gæti ríkið til dæmis tekið hærra gjald af þeim sem fljúga reglulega?“