Ónefndur heimildarmaður innan framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins tjáir franska vikuritinu L'Express að það eigi að vera vel mögulegt að ljúka aðildarviðræðum við Ísland á rúmu ári, kjósi íslenska þjóðin í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst að halda viðræðunum áfram. Frönsk stjórnvöld eru hins vegar sögð hafa áhyggjur af varnarleysi Íslendinga gegn upplýsingaóreiðu og erlendum afskiptum í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar.
Segir hægt að ljúka aðildarviðræðum ESB og Íslands á rúmu ári - Ísland sagt varnarlaust gegn erlendum afskiptum og upplýsingaóreiðu