Lögmaður mótmælanda segist ekki viss um að það standist lög að Hvalur hafi skráð hann sem farþega til þess að geta siglt. Hólmsteinn Harðarson kom sér fyrir í tunnu í mastri skipsins í gær til að mótmæla hvalveiðum. Á fimmta tímanum sigldi skipið úr höfn með Hólmstein um borð.
Katrín Oddsdóttir, lögmaður Hólmsteins, efast um að áhöfn skipsins hafi hugsað til enda ákvörðun um að villa um fyrir honum og skrá hann sem farþega. Áður en lagt var af stað hafi hann ítrekað að hann vildi ekki vera farþegi á skipinu.
Það að sigla svona af stað án þess að vera búin að hugsa út hvaða áhrif þú getur haft á aðra manneskju með því að gera svona, t.d. hvort hann sé viðkvæmur einstaklingur eða annað. Það er mjög stór ákvörðun.
Það sé eflaust óþægilegt fyrir Hval að aðgerðasinnar stöðvi siglingar ítrekað en það breyti því ekki að fólk megi mótmæla og taki þá lagalegum afleiðingum þess.
Þó að maður hafi alveg ákveðna samúð með því að fólk sé ekki hrifið af því að fólk sé að fara inn á svæði í leyfisleysi þá er það nú almennt ekki þannig að eitt lögbrot réttlæti annað.
Lögreglan hafi ekki tekið skýrslu af Hólmsteini eftir að honum var náð niður heldur skutlað honum heim.
„Sem er reyndar áhugavert miðað við hvernig fór fyrir þeim sem síðast gerðu sams konar verknað. Þær fóru beint í skýrslutöku.“
Skipverji þurfti að hlýja Hólmsteini
Hún segir ákvörðun Hvals og viðbrögð í athugasemdakerfum til merkis um aukna hörku í samfélaginu. Hún telji það hafa verið ljóst að þarna hafi ekki verið maður á ferð sem hafi gengið fram af hörku heldur maður sem hafi í örvæntingu gripið til þessa ráðs til að vernda dýrin.
Það sem að gerist þegar það er ákveðið þarna í einhverju þjósti að skrá hann bara sem farþega, án þess að hann átti sig almennilega á því hvað það þýði og svo sigla af stað, er að hann er bara settur í verulega hættu. Honum varð alveg ótrúlega kalt á leiðinni í Hvalfjörð. Svo kalt að það endaði held ég þannig að áhafnarmeðlimur var kominn þarna með honum upp í tunnuna til að halda á honum hita.