Forstöðumaður CERT-IS segir Ísland standa nokkuð vel í netvörnum en þó megi alltaf gera betur. Hann segir fulltrúa Íslands hafa staðið sig vel þegar þeir tóku þátt í stærstu netöryggisæfingu heims á dögunum.
Netöryggisæfingin Skjaldborg 2026 (e. Locked Shields) er haldin af netvarnarsetri Atlantshafsbandalagsins. Hana sótti fjöldi íslenskra sérfræðinga ásamt um 4,000 öðrum þátttakendum frá 41 ríki. Ísland var í teymi með Noregi og Atlantshafsbandalaginu en á meðan á æfingunni stendur keppast lið frá ólíkum löndum að því að leysa ýmiss konar verkefni á sviði netöryggis.
„Ísland, Noregur og NATO voru fimmta stigahæsta liðið af sextán. Það fóru sautján sérfræðingar frá Íslandi sem voru þá bæði frá hinu opinbera, mikilvægum innviðum og einkafyrirtækjum í landinu,“ segir Magni Reynir Sigurðsson, forstöðumaður CERT-IS, netöryggissveitar íslenskra stjórnvalda, í Morgunútvarpi Rásar 2.
„Við fengum flotta öryggissérfræðinga frá netöryggisfyrirtækjum í landinu með okkur. Ekki bara tæknifólk, þarna voru lögfræðingar líka og fleira af því að þetta snýst ekki eingöngu um tækni. Þarna eru líka lagamál sem þarf að taka ákvarðanir um.“
Hernaður færist á internetið í auknum mæli
Þrátt fyrir að Ísland standi vel á sviði netvarna segir Magni það mikilvægt að halda áfram að bæta í. Ríki heims búi sig undir það í auknum mæli að hernaður færist á internetið.
„Það hefur verið lenskan síðustu ár að netöryggisteymi séu að setja meiri fókus á netvarnir og hvernig þau geti varið innviðina gagnvart þessum árásum eins og við höfum verið að sjá í Úkraínu, þessum skemmdarverkum þar sem er verið að fara vísvitandi inn og skemma kerfin.“
Magni segir að á Íslandi séu tæplega áttatíu mikilvægir innviðir. Það séu fyrirtæki og stofnanir sem skiptist í orku, fjarskipta, fjármála, heilbrigðis og samgönguinnviði. Flest þeirra verkefna sem koma á borð sveitarinnar snúa að almenningi, en Magni segir innbrot í kerfi hjá fyrirtækjum og stofnunum hafa færst í aukana að undanförnu. Sömuleiðis sé mikilvægt að fylgjast vel með örri þróun gervigreindar.
„Gervigreindin getur verið nýtt til árása til að finna veikleika og fleira en hún getur líka verið nýtt til að verja innviðina okkar. Hún er mun fljótari að sjá að það sé verið að brjótast inn í kerfin heldur en kannski mannsaugað oft.“