Warning: SQLite3::exec(): database is locked in /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/includes/functions.php on line 154

Warning: SQLite3::exec(): database is locked in /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/includes/functions.php on line 155
Samþykktu að víkja forsætisráðherra úr embætti

Samþykktu að víkja forsætisráðherra úr embætti

Samþykktu að víkja forsætisráðherra úr embætti

Rúmenska þingið samþykkti í dag vantrauststillögu á hendur forsætisráðherranum Ilie Bolojan og að honum yrði vikið úr embætti. Tillagan var samþykkt með afgerandi meirihluta.

Sósíaldemókratar, sem yfirgáfu fjögurra flokka ríkisstjórnarsamstarf með flokki Bolojans í apríl, studdu tillöguna ásamt stjórnarandstæðingum yst á hægri væng.

Ríkisstjórn Bolojans tók við stjórnartaumunum síðasta sumar. Hann innleiddi töluvert af aðgerðum sem miðuðust að því að snúa hallarekstri í Rúmeníu, sem er sá mesti meðal Evrópusambandsríkja.

Hann hefur til að mynda hækkað skatta og í febrúar tilkynnti hann til að mynda að 10% allra opinberra starfsmanna yrði sagt upp fyrir árslok. Það jafngildir um 13.000 manns.

Búist er við því að Nicusor Dan, forseti Rúmeníu, ráðist þegar í að útnefna nýjan forsætisráðherra með það að markmiði að sameina stjórnarmeirihlutann á ný.

#embætti #forsætisráðherra #samþykktu #víkja


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/erlent/2026-05-05-samthykktu-ad-vikja-forsaetisradherra-ur-embaetti-474344

Warning: SQLite3Result::fetchArray(): Unable to execute statement: database is locked in /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/includes/functions.php on line 21