Samkaup kaupa Fjarðarkaup í Hafnarfirði
Fjarðarkaup, sem hafa verið rekin sem sjálfstæð matvöruverslun í Hafnarfirði um áratuga skeið, eru að komast í eigu Samkaupa. Fasteignafélagið Kaldalón kaupir jafnframt húsnæði verslunarinnar við Hólshraun fyrir rúma tvo milljarða króna og hyggst verja 350 milljónum til endurbóta. Kaupin eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins.
Samkaup hafa samið um kaup á Fjarðarkaupum í Hafnarfirði, sem hafa verið rekin sem sjálfstæð matvöruverslun um áratuga skeið. Kaupin marka því tímamót í sögu verslunarinnar, en þau eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins.
Kaupverðið liggur ekki fyrir.
Þetta kemur fram í tilkynningu fasteignafélagsins Kaldalóns til Kauphallarinnar í morgun. Þar er greint frá því að Kaldalón hafi undirritað samning um kaup á öllu hlutafé í félaginu 1717 ehf., sem á fasteignina að Hólshrauni 1 í Hafnarfirði, þar sem Fjarðarkaup hafa verið til húsa.
Samhliða fasteignaviðskiptunum hefur 1717 ehf. gert langtímaleigusamning við Samkaup, sem eru dótturfélag Dranga hf., um alla fasteignina. Samkaup munu taka við rekstri í húsnæðinu samhliða kaupum sínum á Fjarðarkaupum.
Heildarvirði fasteignafélagsins 1717 ehf. í viðskiptunum er tæpir 2,4 milljarðar króna. Að teknu tilliti til frádráttar vegna tekjuskattsskuldbindingar er virði fasteignarinnar sjálfrar metið á um 2,16 milljarða króna.
Kaldalón hefur skuldbundið sig til að …