Samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2026 til 2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026 til 2030 var samþykkt á Alþingi í dag með 33 atkvæðum meirihlutans. 23 þingmenn sátu hjá og sjö voru fjarstaddir.
Í tillkynningu á vef stjórnarráðsins segir að meginmarkmið nýrrar samgönguáætlunar sé að auka framlög til viðhalds vega, hefja stórframkvæmdir og bora jarðgöng á ný.
Fljótagöng voru efst í forgangslista, þar á eftir Fjarðagöng, Súðavíkurgöng og Miklidalur og Hálfdán í Vesturbyggð.
Fleiri gangnakostir verði áfram til skoðunar, en stefnt er að því að hefja framkvæmdir við Fljótagöng árið 2027.
Framlög til viðhalds vega landsins munu aukast verulega. Síðustu ár hafa framlög verið um 12-13 milljarðar króna á ári en hækka í 17,5 milljarða strax í ár. Þá mun meira fé verða veitt til vetrarþjónustu.
Þá verður áfram unnið að því að fækka einbreiðum brúm á Hringveginum og stefnt af því að þeim verði útrýmt á gildistíma þessarar samgögnuáætlunar.
Í tilkynningunni er haft eftir Eyjólfi Ármannssyni innviðaráðherra að með áætluninni væri verið að rjúfa kyrrstöðu síðustu ára.
„Nýtt innviðafélag í eigu ríkisins mun gefa kost á að hraða framvindu og fjármagna fleiri þjóðhagslega mikilvæg samgöngumannvirki, þ.á m. jarðgöng, Ný samgönguáætlun markar þáttaskil og er risavaxið skref fram á við fyrir samgöngur á Íslandi,“ segir Eyjólfur.
Í dag lauk annarri umræðu um innviðafélag var vísað til fjárlaganefndar. Síðari umræða um fjármálaáætlun 2027 til 2031 stendur enn á Alþingi.
Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur náðst samkomulag um þinglok, en ekki er búið að útfæra það nánar og óvíst hvaða mál verði afgreidd fyrir sumarfrí.