Erlendur maður, líklega albanskur, hefur verið sakfelldur fyrir peningaþvætti af gáleysi, en hann faldi tæplega 10.000 evrur, eða andvirði rúmlega 11 milljóna íslenskra króna, í skóm, í póstsendingu til Albaníu.
Var maðurinn ákærður fyrir að hafa um skeið móttekið þessa peninga frá óþekktum aðilum, allt fram að 31. júlí 2025, þegar peningarnir fundust í póstsendingunni.
Maðurinn játaði sök eftir að saksóknari breytti ákæru á þann veg að ákært var fyrir gáleysisbrot en fallið frá kröfu um ásetningsbrot.
Var hann dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi auk þess sem hann þarf að sæta upptöku á peningunum, tæplega 10 þúsund evrum.
Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 30. apríl og má lesa hann hér.