Volodmyr Zelensky Úkraínuforseti segir Rússa hafa beitt norðurkóreskum flugskeytum í mannskæðum árásum á Zaporizhzia í nótt. Sex voru drepnir í árásunum og 19 særðust.
Zelensky segir að þar að auki hafi stýriflaugar og ofurhraðskreið rússnesk flugskeyti verið notuð í árásunum.
Loftvarnaflautur ómuðu í Zaporizhya og Kænugarði í nótt.
Hernaðaryfirvöld í höfuðborginni segja elda hafa kviknað í vöruhúsum í miðhluta borgarinnar. Einn særðist.
Yfirvöld segja sex hafa verið drepna og 16 særst í árásum á héruðin Dnipropetrovsk and Donetsk.