Á undanförnum vikum hefur DV látið gera skoðanakannanir í fjórum af fjölmennustu sveitarfélögum landsins. Það er kannanir á vegum Maskínu í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði og Akureyri. Út frá þeim er hægt að sjá að línur eru byrjaðar að teiknast upp fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.
Hafa ber í huga að stjórnmál á sveitarstjórnarstiginu eru oft mjög staðbundin, mismunandi hvaða öfl eru við völd og í samfloti við hvaða flokka. Ekki er hægt að fullyrða um að þó að stjórnmálaflokkur tapi fylgi í einu sveitarfélagi að það sama hljóti að eiga við um það næsta. Engu að síður gefa kannanirnar fjórar til kynna meginstraumana í stjórnmálunum í vor.
Við skulum líta á stöðu þeirra sex stjórnmálaflokka sem bjóða fram í flestum sveitarfélögum. Það er Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar, Framsóknarflokks, Viðreisnar, Miðflokks og Vinstri grænna.

Útlitið svart
Þegar litið er á fylgi Sjálfstæðisflokksins sést að í könnunum tapar hann fylgi í öllum fjórum sveitarfélögunum miðað við sveitarstjórnarkosningarnar árið 2022. Minnst í Kópavogi, aðeins 1,6 prósenti, en mest í Hafnarfirði, 9,3 prósentum.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið langstærsti flokkurinn á sveitarstjórnarstiginu undan farin ár. Hefur staða hans verið einstaklega sterk í stórum sveitarfélögum nálægt Reykjavík.

Flokkurinn telur sig vera í sóknarfæri í Reykjavík, Reykjanesbæ og Vestmannaeyjum en búast má við að flokkurinn gefi eftir í heildina. Þó ekki endilega um margar prósentur á hverjum stað nema kannski í sveitarfélögum sem flokkurinn vann stóra sigra síðast, til að mynda í Árborg. Þá er spurning hvort að Sjálfstæðisflokkurinn missi loks hreinan meirihluta sinn í Garðabæ eða Seltjarnarnesi.
Sigur alls staðar nema í Reykjavík?
Samfylkingin lítur út fyrir að vera andstæðan við Sjálfstæðisflokkinn. Flokkurinn virðist vera að bæta við sig á landsvísu, stórt sums staðar en minna annars staðar, en hann er hins vegar í stórhættu á að missa völdin í Reykjavík.
Í könnunum DV er eini staðurinn þar sem Samfylkingin missir fylgi í Hafnarfirði. En hafa ber í huga að flokkurinn vann þar stórsigur árið 2022 undir forystu Guðmundar Árna Stefánssonar, þó það dygði ekki til þess að komast í meirihluta.

Sóknarfæri Samfylkingar virðist vera mjög mikil, sérstaklega í Kópavogi þar sem eldri framboð hafa hellst úr lestinni og á Akureyri þar sem flokkurinn mælist nú stærstur. Búast má við að Samfylkingin geti einnig stórbætt fylgi sitt í sveitarfélögum eins og Mosfellsbæ þar sem hún hlaut aðeins 9 prósent síðast og Árborg þar sem hún hlaut rúmlega 15 prósent.

Stjörnuhrap
Framsóknarflokkurinn verður að öllum líkindum stóri tapari sveitarstjórnarkosninganna árið 2026. Í öllum könnunum DV tapar flokkurinn fylgi, mest 13,5 prósenti í Reykjavík.
Þessi niðurstaða ætti ekki að koma mjög á óvart. Framsóknarflokkurinn vann risasigur í sveitarstjórnarkosningunum árið 2022 í kjölfar stórsigurs í þingkosningum árið áður. En ljóst var að fallið var hátt hjá Framsóknarflokknum eftir ríkisstjórnarsetuna með Sjálfstæðisflokknum og Vinstri grænum og þurrkaðist flokkurinn út á höfuðborgarsvæðinu í þingkosningunum árið 2024. Nú heldur blóðbaðið áfram yfir á sveitarstjórnarstigið.

Framsóknarflokkurinn má búast við að tapa fylgi í flestum sveitarfélögum. Einkum þeim sem hann vann stóra sigra í árið 2022, svo sem Mosfellsbæ, Hveragerði og Reykjanesbæ. Meirihlutar allra þessara sveitarfélaga hljóta að vera í mikilli hættu.
Ekki er þó útilokað að flokkurinn sýni viðspyrnu einhvers staðar. Til að mynda í Hafnarfirði þar sem flokkurinn hefur jafn vel sýnt fylgisaukningu og má líklega rekja til persónulegra vinsælda Valdimars Víðissonar bæjarstjóra.
Í bestu stöðunni
Öfugt við Framsóknarflokkinn virðist Viðreisn ætla að verða stóri sigurvegari kosninganna. Flokkurinn er að bæta vel við sig í öllum könnunum nema Akureyri þar sem hann bauð ekki fram undir eigin merkjum árið 2022 en kemur sterkur inn núna með 8,1 prósent.

Fyrir utan fylgisaukninguna þá er flokkurinn að koma sér í góða stöðu til að komast í meirihluta. Gæti flokkurinn verið að taka þá sögulegu stöðu sem Framsóknarflokkurinn hefur haft. Erfitt er til að mynda að sjá meirihluta í Reykjavík án Viðreisnar eða þá í Hafnarfirði þar sem Viðreisn virðist ætla að vinna stórsigur.
Sóknarmöguleikar eru í fleiri sveitarfélögum, svo sem Garðabæ, Mosfellsbæ, Árborg og Reykjanesbæ. Ljóst er að Viðreisn er, sem tiltölulega nýr flokkur, að festa sig rækilega í sessi á sveitarstjórnarstiginu á landsvísu.

Upp úr gröfinni
Annar flokkur sem bætir við sig í öllum könnunum er Miðflokkurinn. Mest í Reykjavík og Kópavogi, það er um meira en 8 prósent.
Endurkoma Miðflokksins ætti ekki að koma mikið á óvart. Eftir að Klaustursupptökurnar voru gerðar opinberar þurrkaðist flokkurinn næstum út af þingi árið 2021. Þetta hrap fylgdi flokknum inn í sveitarstjórnarkosningarnar árið 2022 þar sem hrapið var sérstaklega bratt á höfuðborgarsvæðinu. Fékk flokkurinn yfirleitt í kringum 2 til 3 prósent og var langt frá því að ná inn fulltrúum.

Flokkurinn varðist þessu betur á landsbyggðinni. Til að mynda á Akureyri þar sem flokkurinn komst í meirihluta, í Múlaþingi og í Grindavík þar sem flokkurinn vann ótrúlegan sigur með 32,4 prósentum.
Miðflokkurinn má búast við að fá í kringum 10 prósent í mörgum sveitarfélögum, jafn vel meira á landsbyggðinni.
Prófsteinn fyrir VG
Margir skrifuðu minningargreinar um Vinstri græna eftir þingkosningarnar árið 2024 þegar flokkurinn þurrkaðist af þingi. Enginn stjórnmálaflokkur hefur komið til baka eftir slík örlög. Sveitarstjórnarkosningarnar árið 2026 verða prófsteinn á hvort Vinstri græn geti storkað örlögum sínum.

Skoðanakannanir DV sýna blandaðar niðurstöður fyrir Vinstri græn en hafa ber í huga að flokkurinn býður nú sums staðar fram undir merkjum Vinstrisins. Vinstrið virðist ætla að ná góðum árangri í Reykjavík og Vinstri græn ágætisárangri á Akureyri en framboðin í Kópavogi og Hafnarfirði tapa örlitlu fylgi. Hafa ber hins vegar í huga að Vinstri græn voru ávallt mun sterkari í landsmálunum en á sveitarstjórnarstiginu. Á flokkurinn mjög fáa sveitarstjórnarfulltrúa, sérstaklega í stærri sveitarfélögunum.
