Rúta með 34 þýskum ferðamönnum um borð valt út af R6-brautinni í Þrændalögum í Noregi í morgun. Slökkvilið og sjúkrabílar fóru á vettvang og ellefu voru fluttir á sjúkrahús. Sjúkraþyrla og björgunarþyrlur frá Bodø og Ørland voru einnig sendar á staðinn.
Ómeiddir farþegar voru fluttir á hjúkrunarheimili í Namsskogan.
„Samkvæmt upplýsingum núna eru engin alvarleg slys á fólki, en nokkrir eru með minniháttar meiðsl,“ er haft eftir Anlaug Oseid, aðgerðastjóra hjá lögreglunni í Þrændalögum, í frétt NRK.
„Þetta fór mjög, mjög vel“
Vitni sem komu á staðinn rétt eftir slysið þurftu að brjóta sér leið inn í rútuna með hamri til að aðstoða farþega.
„Það var svolítil ringulreið,“ segir Elin Torgnes, sem var meðal þeirra fyrstu sem komu á slysstað, í frétt NRK.
„Ég hjálpaði bara sjúklingum og þeim sem voru mest slasaðir. Það voru fjórir.“ Hún segist fegin að allir hafi komist lífs af. „Þetta fór mjög, mjög vel,“ segir hún.
Að sögn vörubílstjóra sem ók á eftir rútunni ók hún rólega og yfirvegað.