Þetta kemur fram í tilkynningu á vefsíðu Stjórnarráðsins.
Herskipið nefnist Yuri Ivanov og er innan íslenskrar efnahagslögsögu en fyrir utan íslenska landhelgi. Skipið hefur verið norður og vestur af landinu undanfarna daga og á svipuðum slóðum og það var þegar það kom í lögsöguna í júní.
Í fyrri ferð Yuri Ivanov fylgdust skipverjar með æfingu Atlantshafsbandalagsins á Norður-Atlantshafi. Skipið er þó með takmarkaðan vopnabúnað og sinnir fyrst og fremst njósnum og upplýsingaöflun.
Engin merki eru um að neðansjávarinnviðum eða öryggi sjófarenda stafi ógn af skipinu.
„Landhelgisgæsla Íslands, í nánu samráði við varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins og herstjórnir Atlantshafsbandalagsins, fylgist grannt með ferðum skipsins en náið samráð er einnig haft við stjórnstöð bandalagsins á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli,“ segir í tilkynningunni.