Rússnesk yfirvöld hafa lýst eftir Pavel Durov, stofnanda og forstjóra samskiptaforritsins Telegram. Þau saka hann um aðild að hryðjuverkum með því að hafa leyft Úkraínumönnum að nota forritið til liðs við sig.
Dubrov, sem er 41 árs, fæddist í Rússlandi en hefur búið erlendis um árabil. Hann er með franskt vegabréf og einnig frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum.
Telegram er meðal mest notuðu samskiptaforrita í Rússlandi. Yfirvöld þar í landi hafa ítrekað reynt að takmarka aðgang almennings að forritinu og þrýst á Durov að afhenda þeim upplýsingar um notendur.
Samfélagsmiðlastríð milli Rússlands og Úkraínu
Rússneska öryggisþjónustan FSB segist hafa sent frá sér tilkynningu þar sem lýst er eftir Durov á alþjóðavettvangi. Eðli tilkynningarinnar er óljóst og sömuleiðis er alls óvíst hvort og hvernig yfirvöld annarra ríkja bregðast við henni.
FSB heldur því fram að úkraínska leyniþjónustan hafi notað Telegram til að fá Rússa til að fremja skemmdarverk. Þá hafi Durov ekki fjarlægt efni sem af forritinu sem bannað hefur verið í Rússlandi.
Stjórnvöld í Rússlandi og Úkraínu hafa sakað hvort annað um að nota samfélagsmiðla til að afla sér frekari stuðnings í stríðinu milli þeirra en rúm fjögur ár eru frá innrás Rússa í Úkraínu.
Hvetja íbúa Rússlands til að nota ríkisrekið samskiptaforrit
Durov stofnaði áður forritið VKontakte, sem oft hefur verið kallað „Facebook Rússlands“. Eftir að hafa verið beittur þrýstingi af rússneskum stjórnvöldum hrökklaðist hann frá fyrirtækinu og stofnaði síðar Telegram.
Árið 2024 var Durov handtekinn í Frakklandi. Þá var honum gefið að sök að dreifa ólöglegu efni á Telegram. Honum var síðar sleppt gegn tryggingu og ferðabanni hans aflétt.
Stjórnvöld í Rússlandi hafa að undanförnu hvatt íbúa landsins til að nota ríkisstudda skilaboðaforritið Max í stað annarra forrita á við Telegram og WhatsApp. Durov hefur gagnrýnt Max. Hann segir það ríkisrekið forrit búið til fyrir eftirlit og ritskoðun stjórnvalda.