Tvær rússneskar orrustuþotur sem flugu í átt að Svíþjóð á föstudag sneru við aðeins nokkur hundruð metrum áður en þær flugu inn í sænska lofthelgi.
Sænski herinn birti í dag nýjar upplýsingar um aðgerðir sínar á föstudag en orrustuþotur flughersins voru sendar til móts við rússnesku þoturnar.
Önnur þotan sneri við austur Landsort í sænska skerjafirðinum en hin í grennd Hanö-flóa í Suður-Svíþjóð.
Ewa Skoog Haslum, aðgerðastjóri í sænska hernum, segir í samtali við sænska ríkisútvarpið að með flugi orrustuþotanna hafi Rússar ef til vill verið að kanna viðbragð Svía. Hún segir herinn líta flug rússnesku þotanna alvarlega.