Rússar eru sagðir vera að byggja upp risavaxið ratsjárkerfi í Kaliningrad, hólmlendu Rússlands við Eystrasaltið. Uppbyggingin fer fram í borginni Gvardeysk, skammt frá landamærum Póllands og Litáen.
The Times greinir frá því að uppbyggingin komi fram á gervihnattamyndum. Myndirnar birtust fyrst í þýska dagblaðinu Frankfurter Allgemeine Zeitung.
The Times segir að ratsjárkerfið sé með þrjú loftnetsmöstur sem hvert um sig er um 500 metra hátt.
Ratsjárnar virðast vera yfirborðsratsjár sem eiga að geta greint flugskeyti, herskip og flugvélar í mikilli fjarlægð, eða á milli ríflega 880 kílómetra til 3.200 kílómetra fjarlægð. Kerfið gæti því náð allt yfir til Bretlands og norður- og vesturhluta Evrópu.
Myndirnar eru sagðar nýjasta sönnun þess að verið sé að byggja upp háþróaða miðstöð fyrir rafrænan hernað í Kaliningrad.
Talið er að mikil hernaðaruppbygging hafi farið fram þar á undanförnum árum og það séu nægar geymslur og burðarkerfi fyrir 100 kjarnaodda. Háttsettir heimildarmenn í Póllandi og Litáen telja að flutningur á kjarnaoddum til Kaliningrad sé nú þegar hafinn.
Á síðastliðnum fjórum árum hafa orðið margar GPS-truflanir á þessu svæði, sem hefur valdið usla í leiðarkerfum skipa og flugvéla í Norðaustur-Evrópu.
Nokkrar bandalagsþjóðir Atlantshafsbandalagsins búa einnig yfir ratsjám með sams konar getu. Breski flugherinn er með Plútó 1 og 2 ratsjártækin í herstöð sinni á Kýpur og franski herinn er með Nostradamus-stöðina sem er af sambærilegri stærð og er í Dreux, um 80 km vestur af París.