Sakborningur í stóru kókaínmáli á Austurlandi hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 8. maí. Þetta kemur fram tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi.
Segir í tilkynningunni að rannsókn málsins miði vel en hún snýr að innflutningi á rétt um 43 kg af kókaíni. Slíkt magn hefur ekki verið haldlagt áður í einu og sama máli hér á landi, segir í tilkynningu.
Fíknefnin fundust í við leit tollvarða og lögreglu í bíl sem fluttur var til landsins með Norrænu fyrr í mánuðinum.