Reyndi að lauma sér til Íslands með fölsuðu skilríki

Keflavíkurflugvöllur
Mynd: Víkingur
Þrítugur íraskur maður hefur verið ákærður fyrir skjalafals eftir að hafa framvísað fölsuðu spænsku vegabréfi í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í mars síðastliðnum.
Samkvæmt ákæru lögreglustjórans á Suðurnesjum framvísaði maðurinn vegabréfinu við tollverði og lögreglu í komusal flugstöðvarinnar þann 13. mars. Hann er sagður hafa gert það í blekkingarskyni og látið sem vegabréfið væri hans eigið.
Vegabréfið var gefið út á nafn annars manns og hafði gildistíma frá júní 2024 til júní 2034.
Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness 2. nóvember næstkomandi.
Ákæruvaldið krefst þess að hann verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar vegna málsins.