Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi Kerecis, hefur tekið við nýju hlutverki hjá móðurfyrirtækinu Coloplast. Hann verður sérstakur ráðgjafi forstjóra fyrirtækisins og einbeitir sér að vöruþróun og nýsköpun.
„Þetta er eitthvað sem ég sá fyrir mér að myndi gerast fyrir ári síðan. Nú er ég kominn á þennan stað, að geta einbeitt mér meira að þróunarmálum og slíku og ekki með rekstrarlega ábyrgð lengur sem ég er búinn að vera með núna í stórum mæli undanfarin átta eða tíu ár. Þannig þetta er afskaplega gleðilegur dagur,“ segir Guðmundur.
Ekki tímabært að hætta í stjórnandastöðu á óvissutímum
Coloplast keypti íslenska fyrirtækið Kerecis árið 2023 á 175 milljarða króna. Guðmundur Fertram tók við stöðu aðstoðarforstjóra sárameðferðar hjá Coloplast eftir söluna.
„Þá tók ég að mér að vera stjórnandi í tvö ár. 30. september í fyrra hefði ég getað hætt en þá var Coloplast forstjóralaust. Þá voru ýmsar áskoranir á markaðnum út af breytingum á endurgreiðslum í bandaríska heilbrigðiskerfinu,“ segir Guðmundur.
„Mér fannst ekki rétti tíminn þá til að hætta, þegar það var svona ákveðin óvissa bæði í rekstrinum hjá Coloplast og úti á markaðnum. Ég tók því að mér að vera áfram að stjórna Kerecis og tók reyndar líka yfir stjórn á öllum sárasöludeildum Coloplast um allan heim.“
Gavin Wood tók við stöðu forstjóra Coloplast í maí. Þá taldi Guðmundur rétt að hætta í stjórnandastöðu. Hann hefur nú tekið við hlutverki sérstaks ráðgjafa Woods.
Hefur engin áhrif á starfsemi hérlendis
Nýja hlutverkið snýr meðal annars að vöruþróun, þróun á nýrri tækni, áframhaldandi samskiptum við lækna og prófunum.
„Núna er ég kominn í þróunarhlutverk og er ekki lengur með daglega stjórnun á þessu 2500-3000 manna batteríi sem ég hef verið með núna undanfarið ár.“
Guðmundur segir breytinguna ekki eiga eftir að hafa nein áhrif á starfsemi Kerecis hér á landi.
„Aðalstarfsemi Kerecis er sölustarfsemi sem er í Bandaríkjunum. Þar erum við með um 300 sölumenn,“ segir Guðmundur.
Á Ísafirði starfa um 80 manns á vegum Kerecis og í Reykjavík eru starfsmennirnir um 70 talsins. Stofnandinn segir að samhliða vexti og velgengni Kerecis eigi þörfin á starfsfólki fyrirtækisins á Íslandi aðeins eftir að aukast.