Garðaþjónusta Sigurjóns málaði regnbogafánann aftur á tröppurnar og birti af því glaðlegar myndir af störfunum í blíðunni í dag.
Að þessu sinni var aðeins málað framan á tröppurnar til að tryggja hálkuvarnir sem ýmsir höfðu velt upp.
Íslenski fáninn var málaður yfir regnbogafánann og í kjölfarið var málningin öll fjarlægð daginn eftir. Til hefur staðið að mála regnbogafánann og var tækifærið gripið í rólyndisveðrinu í dag.