Í Kænugarði skemmdist ævaforn dómkirkja frá elleftu öld sem er eitt helsta kennileiti borgarinnar þegar rússneskar sprengjur hæfðu hana. Forsætisráðherra Úkraínu Yulia Svyrydenko segir að árásin á kirkjuna sé hrottaleg atlaga að úkraínsku þjóðinni og menningu hennar. Úkraínumenn gerður einnig árásir á rússneskt landsvæði í nótt og er hermt að þrír hafi látist í borginni Tula suður af Moskvu.
Árásir næturinnar á Kænugarð hafa haft mikil áhrif á orkuinnviði og í morgun voru um 140 þúsund borgarbúar án rafmagns.
Árásir Rússa nú eru gerðar í aðdraganda leiðtogafundar G7 ríkjanna sem hefst í Frakklandi í vikunni þar sem málefni Úkraínu verða á dagskrá.