Í stað hinsegin fánans sem hefur glætt tröppurnar lífi í þó nokkur ár blasir þar nú við flennistór íslenskur fáni sem málaður var í skjóli nætur. Sóknarprestur við Grafarvogskirkju staðfestir að gjörningurinn sé ekki á vegum kirkjunnar.
Málið hefur ratað á borð Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem rannsakar nú málið sem hatursglæp að sögn Hjördísar Sigurbjartsdóttur, aðstoðaryfirlögregluþjóns á lögreglustöð fjögur, sem sinnir meðal annars verkefnum í Grafarvogi.
Enginn liggur undir grun að svo stöddu en lögregla afli gagna og sé þegar komin með myndefni í hendurnar úr einni eftirlitsmyndavél á svæðinu.