Aðfaranótt fimmtudagsins 6. ágúst spennusetur Landsnet Dalvíkurlínu 2. Til að hægt sé að vinna við verkið þarf að taka Dalvíkurlínu 1 úr rekstri á meðan.
Af þeim sökum verður rafmagnslaust í Dalvíkurbyggð, það er að segja á Dalvík, í Svarfaðardal, Skíðadal og í Hrísey, í allt að fjórar klukkustundir.
Gera má ráð fyrir stuttum rafmagnstruflunum áður en vinna hefst og eftir að henni lýkur á Ólafsfirði, Árskógsströnd og Grenivík.
Í tilkynningu frá Rarik segir um rafmagnsleysið í Dalvíkurbyggð og Hrísey:
„Rafmagnslaust verður í Dalvíkurbyggð og í Hrísey frá kl. 00:05 til kl. 04:05 aðfararnótt fimmtudagsins 6. ágúst. Rafmagn kann þó að koma á í stuttan tíma meðan á prófunum stendur. Ekki skal líta á slíka tímabundna innsetningu sem merki um að framkvæmdinni sé lokið og viðskiptavinir eru beðnir um að gera ráð fyrir truflunum allan tímann.“
Um rafmagnstruflanirnar fyrir og eftir framkvæmdir segir í tilkynningunni:
„Gera má ráð fyrir mjög stuttri rafmagnstruflun, eða blikki, einhvern tíma á milli kl. 23:00 og 23:59 miðvikudaginn 5. ágúst. Önnur stutt truflun verður í lok aðgerðarinnar, einhvern tíma á milli kl. 04:05 og 05:00 fimmtudaginn 6. ágúst. Ekki er um samfellt rafmagnsleysi að ræða á þessum svæðum, heldur stutt rof þegar tengingum er breytt í upphafi og lok aðgerðarinnar.“
Sérstaklega er vakin athygli á því að þau sem reiða sig á órofið rafmagn, svo sem vegna viðkvæms búnaðar eða starfsemi, þurfa að gera ráðstafanir vegna þessara truflana. Tímasetningarnar geta breyst ef ófyrirséðar aðstæður koma upp.
Upplýsingar um rafmagnstruflanirnar verða birtar á kortasjá Rarik á rarik.is/rof. Einnig má hafa samband við þjónustuver í síma 528-9000.