Rafleiðni jókst umtalsvert í Múlakvísl í nótt og náði toppi um klukkan 1 eftir miðnætti. Sigríður Magnea Óskarsdóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir rafleiðnina óvenju háa miðað við árstíma.
„Hún hækkaði umtalsvert eftir miðnætti og náði toppi svona um og upp úr klukkan 1 sem lækkaði svo aðeins. Þá fór hún hæst í yfir 500 míkróS/cm. Hún er enn þá há og vatnshæð hefur hækkað en ekkert mjög mikið þar sem að áin grefur sig og dreifir sér. En það er enn talsvert vatn í ánni,“ segir Sigríður. Rafleiðnin var 493 míkróS/cm um klukkan 8, að sögn Sigríðar. Til samanburðar var gildið innan við 300 í gær, sem þótti hátt.
„Það eru nokkur ár síðan við fengum svona háa rafleiðni í Múlakvísl, hún er óvenju há en þetta er alls ekki óþekkt.“
Þessu fylgir mikil gasmengun.
„Það þarf að fara varlega nálægt bökkum árinnar, ekki vera þar og heldur ekki við upptök hennar. Ef fólk finnur fyrir sviða í augum eða nefi og koki þá þarf það að koma sér í burtu strax,“ segir Sigríður.
Óvíst er með framhaldið og enn er of snemmt að segja til um hvort hlaupið sé í rénun. Lítil jarðskjálftavirkni hefur fylgt hlaupinu. Sigríður segir að í gær hafi mælst lítill óróapúls um klukkan 19 í gærkvöld. Honum fylgdu tveir litlir skjálftar, um og yfir einn að stærð.
Óróapúls, margir tengja orðið við eldvirkni. Eru einhver merki eldvirkni þarna?
„Ekki eins og staðan er núna. Við teljum að þetta gæti tengst suðu í jarðhitakerfinu,“ segir Sigríður. Hún eigi sér oft stað, bæði í Mýrdalsjökli og Skaftárkötlum í Vatnajökli.