Þetta segir Unnar Már Ástþórsson, aðalvarðstjóri á lögreglustöðinni á Hverfisgötu í samtali við Vísi.
Í dagbókarfærslu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fyrir gærkvöldið og nóttina sagði frá vopnuði ráni, þar sem maður hafði rænt annan með eggvopni.
Unnar Már segir að ræninginn hafi komist á brott með einhverja fjármuni en þeir hafi ekki verið miklir. Enn hafi ekki tekist að hafa hendur í hári hans en lögreglu gruni um hvern var að ræða. Málið sé í rannsókn.