Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, og Jared Kushner, tengdasonur Bandaríkjaforseta og erindreki Bandaríkjastjórnar í Mið-Austurlöndum, ræddu að láta bandarískan hershöfðingja hafa eftirlit með afvopnun Hamas-samtakanna. Fyrr myndi ísraelskt herlið ekki draga sig frá Gaza. Þetta hefur AFP-fréttaveitan eftir ísraelskum embættismanni.
Kushner fundaði með Netanjahú í dag í Jerúsalem eftir að hafa rætt við leiðtoga Hamas í gær um friðaráætlun á Gaza. Samtökin samþykktu að afvopnast í lok júlí. Ísrael hafnaði friðaráætluninni í síðustu viku.
Embættismaðurinn sagði við AFP að Kushner og Netanjahú væru sammála um að endurbygging myndi ekki eiga sér stað á Gaza fyrr en Hamas myndi leggja niður vopn. Fyrsta skrefið í áttina að því væri að krefjast þess að Hamas afhendi vopn sín undir eftirliti bandarísks hershöfðingja.