Bandaríska rokksveitin Queens of the Stone Age heldur tónleika í Höllinni þann 24. október næstkomandi, en um er að ræða sérstaka tónleika sem settir eru upp eingöngu fyrir Ísland. Þetta er stórmerkilegt í sjálfu sér þar sem sveitin hefur lengi þótt ein merkilegasta rokksveit samtímans.
Samkvæmt tilkynningu frá Senu Live hefur sveitin lengi haft áhuga á að koma fram hér á landi, en það hefur ekki gengið upp fyrr en nú. Í þetta sinn er ekki um að ræða hluta af stærri Evróputúr heldur sérferð sem hljómsveitin ákvað að ráðast í sérstaklega fyrir íslenska aðdáendur.
Tónleikarnir marka því ákveðin tímamót fyrir íslenska rokkaðdáendur, enda eru liðin um 25 ár frá því sveitin steig fyrst fram á sjónarsviðið og hefur hún á þeim tíma byggt upp sterka stöðu sem ein áhrifamesta rokksveit samtímans.
Sveitin valdi sjálf íslenska upphitunarsveit
Það verður íslenska sveitin Virgin Orchestra sem sér um upphitun, en samkvæmt Senu var hún sérstaklega valin af Queens of the Stone Age sjálfum.
Virgin Orchestra hefur vakið athygli á síðustu árum fyrir kraftmikinn hljóm sem sækir áhrif í post-pönk, dreampop, raftónlist og hávaðarokk. Sveitin hefur verið á mikilli siglingu bæði hérlendis og erlendis, meðal annars eftir útgáfu plötunnar Fragments árið 2023 og EP-plötunnar Let It Burn árið 2025.
Forsala hefst á miðvikudag
Forsala fyrir tónleikana hefst 25. júní klukkan 11:00 og almenn sala daginn eftir á sama tíma.
Miðaverð spannar frá tæplega 13 þúsund krónum upp í tæpar 50 þúsund krónur, þar sem dýrustu miðarnir fela í sér ýmis fríðindi.
Sveitin, sem skipuð er meðal annars Josh Homme, Troy Van Leeuwen og Jon Theodore, hefur á síðustu árum verið lofuð fyrir öfluga sviðsframkomu og gagnrýnendur hafa sagt hana vera á nýjum hæðum. Blaðamaður Nútímans getur reyndar vottað að Queens of the Stone Age hefur aldrei slegið slöku við og hefur í reynd verið besta tónleikasveit veraldar um áratugaskeið.
Að sögn skipuleggjenda er því von á einu stærsta rokktónleikakvöldi ársins á Íslandi í haust og það er engin ástæða til að draga þau orð í efa. Þetta er eitthvað sem sannir rokkunnendur láta alls ekki framhjá sér fara.